viðauki við samninginn um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég vil fyrst þakka hv. þm. Páli Vali Björnssyni fyrir að koma hér upp og setja mikilvægt mál á dagskrá. Nú er það svo að við vorum bæði við störf þegar þessi tillaga var samþykkt, eins og mig rekur minni til. Ég man vel eftir þeirri tillögu sem samþykkt var um að setja skyldi vinnu af stað við að ljúka við að fullgilda hina valfrjálsu bókun.
Síðan hefur það gerst, eins og hv. þingmaður þekkir jafn vel og ég, að væntanlega hafa tíðar kosningar komið í veg fyrir að þessari vinnu væri lokið á þeim tíma sem samþykkt var af Alþingi. Ég vænti þess, hafi ég verið hér í sal, að ég hafi greitt tillögunni atkvæði mitt, þannig hefði ég alla vega gert það. Að sjálfsögðu tel ég þetta mikilvægt mál. Ég hef tjáð mig um það áður að það sé mikilvægt að ljúka fullgildingu þessarar valfrjálsu bókunar sem veitir þá kæruleið sem hv. þingmaður fór svo vel yfir hér.
Ég get ekkert sagt annað en það að ég tek brýningu hv. þingmanns og mun ræða málið við hæstv. dómsmálaráðherra sem væntanlega fer með þetta mál samkvæmt verkaskiptingu ráðuneyta. Vilji Alþingis liggur fyrir í þeirri tillögu sem hv. þingmaður nefnir hér og það er mjög mikilvægt að sá vilji verði fullnustaður.