viðauki við samninginn um réttindi fatlaðs fólks.
Forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir gott svar. Það er gott að heyra að hún er sammála mér í þessum málum. En það er ótrúlega óþolandi hér á þingi að leggja fram þingsályktunartillögu sem allir samþykkja og svo er henni í rauninni bara hent í ruslið. En þar sem ég veit að í brjósti hæstv. forsætisráðherra slær hjarta úr skíragulli vil ég nota tækifærið og hvetja hana og brýna hana til þess að styðja þá þingsályktunartillögu sem liggur í þinginu og lögð var fram í september á síðasta ári undir forystu hv. þm. Ágústs Ólafs Ágústssonar, um að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks núna á vorþingi, ég ætla bara að vera svo brattur. Og fullgilda viðaukann líka og sýna þessum þjóðfélagshópi að okkur er annt um hann. Þessi þjóðfélagshópur, öryrkjar og fatlaðir á Íslandi, hefur mátt þola fordóma, mismunun, andlegt og líkamlegt ofbeldi og vanrækslu alla tíð. Nú er mál að linni. Það er löngu kominn tími til að við tökum þetta föstum tökum. Ég trúi því að hæstv. forsætisráðherra sé sammála mér um það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)