149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

viðauki við samninginn um réttindi fatlaðs fólks.

[11:20]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni allt of hlý orð í minn garð. Ég vil segja honum að þetta er ekki alveg svona gott en hins vegar er ég sammála honum … (PVB: Þetta er mín reynsla.) — Ég þakka fyrir. En ég er sammála hv. þingmanni að þetta er mikilvægt mál og mér er kunnugt um að unnið er að því að skila inn skýrslu til Sameinuðu þjóðanna vegna úttektar á stöðu mála hér á landi.

Það er mikilvægt að sinna þeim málum af krafti og ég hygg að ekki bara sú sem hér stendur heldur ríkisstjórnin öll sé sammála um það. Ég þekki tillögu hv. þm. Ágústar Ólafs Ágústssonar sömuleiðis og er mikilvægt að við tökum hana til skoðunar á Alþingi. Ég held nefnilega að við séum öll sammála um þetta markmið. Ég er búin að rifja það aðeins upp og ég man betur núna í seinna svari eftir tillögu hv. þingmanns sem kom inn undir þinglok og þá birtist eindreginn vilji þingsins.

Það er ekki gott þegar mörg verkefni og tíðar kosningar verða til þess að svona þingsályktunartillögur detta niður í skúffu og gleymast. Það má ekki gerast og ég vil því nýta tækifærið að lokum og þakka hv. þingmanni (Forseti hringir.) fyrir að brýna okkur til dáða um málið, sem ég hygg að Alþingi geti verið sammála um.