aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Herra forseti. Rétt eins og margir aðrir landsmenn höfum við í Samfylkingunni fagnað því að samningar hafi náðst á vinnumarkaði og línur nokkuð skýrst þó að enn eigi eftir að semja við fjölmennar stéttir hjá ríki og sveitarfélögum, ekki síst stórar stéttir sem annast umönnun og uppfræðslu. Samningarnir ná reyndar ekki til hópa aldraðra sem þurfa að reiða sig á lífeyri sinn sem skertur er óhæfilega og öryrkja sem dragast nú aftur úr. Það má líka minna á að námsmenn fá ekki hærri grunnframfærslu. Áfram munu barnabætur skerðast langt undir meðallaunum. Enn virðist litið svo á í stjórnsýslunni að barnabætur séu fátækrastyrkur fremur en sanngjörn leið til að létta undir með barnafjölskyldum. Áfram verða peningar hér á okurverði en vextir eru, eins og við vitum, annað orð yfir það verð sem við greiðum fyrir peninga. Vaxtabætur eru á góðri leið að hverfa. Í fjarska heyrum við drunur af verðbólgunni með tilheyrandi vaxtahækkunum og forsendubresti kjarasamninga.
Þannig má áfram telja en það er að sjálfsögðu ánægjuefni að tekist hafi að semja og að tekist hafi að fá ríkisstjórnina til að leggja meira af mörkum til að bæta almenn kjör hér á landi, t.d. með löngu tímabærum áformum um umbætur á húsnæðismarkaði, sem vonandi verða að veruleika, áformum um að taka loksins á þeirri glæpastarfsemi á vinnumarkaði sem kennd er við félagsleg undirboð, breytingum á skattkerfi sem vonandi verða til hagsbóta fyrir skattpínt alþýðufólk og lengingu fæðingarorlofs sem er mikilvægt og gott framfaramál.
Enn eigum við eftir að sjá hvaða áhrif þessar aðgerðir koma til með að hafa á líf og kjör landsmanna þegar fram í sækir, þegar rykið sest og daglegt líf tekur við eftir hátíðarhöldin. Það verður tíminn að leiða í ljós en vert er að hafa í huga að þessar breytingar hrófla ekki við grundvellinum í því efnahagskerfi sem hefur magnað upp óánægju í samfélaginu árum saman. Þær breyta ekki eignamisskiptingunni sem er svo mikil á Íslandi. Þær ráðast ekki að rótum þess vanda sem fylgir krónunni sem ríkisstjórnarflokkunum er svo kær en veldur því að fámenn auðstétt getur rakað til sín fé meðan almenningur má súpa seyðið af sveiflunum sem fylgja notkun hennar sem stjórnmálamenn eru svo hrifnir af og kenna þær lífskjaraskerðingar við hagstjórn.
Notkun krónunnar, herra forseti, er sá lífskjarasamningur sem gildir raunverulega á Íslandi. Eins og við Samfylkingarfólk höfum talað um er stóra myndin óbreytt. Við vitum hins vegar að eitt er ekki óbreytt og það er fjármálaáætlun. Efnahagslegar forsendur hennar voru meira að segja gjörbreyttar áður en hún kom til umræðu á Alþingi og nú er þessi áætlun eins og hvert annað trúarrit sem sumir halda í dauðahaldi. Það er mikilvægt að horfast í augu við það og láta af rétttrúnaðarkreddum. Aðhaldskrafan á ráðuneytin um niðurskurð sem nemur kostnaðarauka af kjarasamningum er ósanngjörn og getur truflað mikilvæga starfsemi þegar fram líða stundir verði henni framfylgt af hörku.
Eins og málum er háttað binda fjármálareglurnar um of hendur framkvæmdarvaldsins og löggjafarvaldsins til að taka ákvarðanir um innspýtingu þar sem hennar kann að vera þörf. Hæstv. fjármálaráðherra hefur sagt að ef komi til þess að hægi á hagvextinum vegna efnahagslegra áfalla verði brugðist við með því að skera niður útgjaldahliðina. Þarna er hagspeki Sjálfstæðisflokksins lifandi komin, að ríkið auki útgjöld sín í góðæri en dragi saman í hallæri meðan reynslan sýnir og öll skárri hagfræði kennir að þessu eigi að vera öfugt farið, að ríkið haldi að sér höndum í góðæri en auki útgjöld þegar harðnar á dalnum til að draga úr sveiflum og létta undir með fólki. Þetta er hagspeki auðmanna sem líta á ríkisútgjöld sem nokkurs konar lúxus sem hægt sé að leyfa sér þegar allt leikur í lyndi en þurfi að skera niður þegar harðnar á dalnum. Þessi hagspeki ræður för.
Virðulegi forseti. Við í Samfylkingunni tökum undir með fjármálaráði þegar það segir í umsögn sinni um fjármálaáætlun að breyttar forsendur kalli á viðbrögð. Forsendurnar eru svo sannarlega breyttar: loðnubrestur, fækkun ferðamanna, gjaldþrot flugfélags, vofa atvinnuleysis lætur á sér kræla, margvíslegur kostnaður ríkissjóðs af kjarasamningum.
Herra forseti. Í Kristnihaldi undir Jökli lætur Halldór Laxness Jón Prímus segja: „Sá sem ekki lifir í skáldskap lifir ekki af hér á jörðinni.“ Mér virðist sem hæstv. ríkisstjórn kunni e.t.v. að taka þessi orð fullbókstaflega [Hlátur í þingsal.] því að Laxness var hér að tala um góðan skáldskap og a.m.k. ekki fjármálaáætlun.