aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Herra forseti. Það er alltaf hægt að deila um það hversu stórt hlutverk ríkisvaldið eða opinberir aðilar eigi að leika þegar kemur að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Ég er einn þeirra sem oftar en ekki hafa gagnrýnt aðkomu ríkisvaldsins að kjarasamningum eða réttara sagt gagnrýnt aðila vinnumarkaðarins, Samtök atvinnulífsins og samtök launafólks fyrir að gera þá kröfu að byggja kjarasamninga á því sem ríkisvaldið getur gert hverju sinni, að koma til móts við að auðvelda kjarasamninga.
Ég hef haldið því fram að með því sé verið að byggja undir ákveðið ábyrgðarleysi hjá aðilum vinnumarkaðarins. Það er hlutverk þeirra að semja um kaup og kjör á almennum vinnumarkaði og þar með leggja línurnar þegar kemur að launastefnu hér á landi. Það er hins vegar hlutverk hins opinbera og ríkisvaldsins sérstaklega að tryggja heilbrigða umgjörð efnahagslífsins, tryggja stöðugleika fyrir atvinnulífið og síðast en ekki síst fyrirsjáanleika í öllum leikreglum þannig að hægt sé að gera samninga til lengri tíma, hvort heldur er um kaup og kjör eða aðra samninga.
Hins vegar er ljóst að hið opinbera getur gert ýmislegt og það er kannski ekki óeðlilegt að aðilar vinnumarkaðarins bendi á ríkisvaldið og bendi á sveitarfélögin og segi: Þið verðið nú að koma aðeins inn í þessa mynd með því að slaka aðeins á klónni, gera okkur kleift að ná samningum sem byggja undir framtíð okkar allra. Það verður að segjast eins og er að þegar farið er yfir þá lífskjarasamninga sem nú hafa náðst hefur þessu markmiði verið náð. Þeir byggja á því að hækka laun, einkum lágtekjuhópa, auka sveigjanleika til að stytta vinnutíma, lækka skatta og þá fyrst og fremst á þá sem lægri tekjur hafa. Með því er verið að ryðja braut að lægri vöxtum og ljóst er að heimili og fyrirtæki munu öll hagnast á því.
Fyrir þann sem hér stendur verður það að játast að hjarta mitt hefur aðeins slegið hraðar og með meiri taktfestu síðustu vikur þegar ég hef skynjað það að samtök launafólks hafa lagt áherslu á að lækka skatta, ekki síst á hina tekjulægri, vegna þess að þar eigum við samleið. Það er einnig gleðilegt að aðkoma ríkisvaldsins að þessum kjarasamningum skuli vera byggð á áherslu á að búa í haginn fyrir fjölskyldufólk, ekki síst barnafjölskyldur. Barnabætur verða hækkaðar, skerðingarmörk hækkuð, fæðingarorlof lengt upp í 12 mánuði. Þetta mun skipta barnafólk alveg gríðarlega miklu máli.
Það er einmitt þess vegna sem ég er svo glaður og eins og ég hef sagt hér ítrekað þurfum við að fara að huga betur að því í þessum sal að allt sem við gerum, allar ákvarðanir sem við tökum, hvort heldur er í sköttum, samgöngumálum, skipulagi heilbrigðiskerfisins eða menntakerfisins, í rauninni alveg sama hvað við gerum, eigum við alltaf að hafa í huga og spyrja okkur hvaða hag fjölskyldurnar í landinu hafa og sérstaklega barnafjölskyldur af því sem við erum að gera.
Upptaka nýs lægsta þreps tekjuskatts lækkar skatta. Þó að farin sé önnur leið en ég hef talað hér fyrst og fremst um, sem er stiglækkandi persónuafsláttur, er þetta mikið framfaraskref og skiptir láglaunafólk gríðarlega miklu máli, skiptir öryrkja gríðarlega miklu máli og skiptir eldri borgara miklu og það mun skipta ungt fólk, ekki síst ungt barnafólk, miklu þegar tekið er upp nýtt lægra tekjuskattsþrep.
Þó að deila megi um ýmislegt og ýmsar þær tillögur sem liggja fyrir er varða húsnæðismál verða menn að líta á þær í heild sinni. Það truflar mig auðvitað að við séum hugsanlega að stíga skref í þá átt að banna jafngreiðslulán til 40 ára vegna þess að það mun hugsanlega koma í veg fyrir það að ýmsir sem vilja láta drauminn sinn rætast en hafa ekki miklar tekjur geti ráðist í íbúðarkaup, en við getum kannski fundið út úr því. Gleðilegast er auðvitað að verið er að stíga alveg stórkostleg skref í að styrkja séreignarstefnuna, gera fólki auðveldara að eignast sína eigin íbúð, að veita heimild til að nýta 3,5% tilgreinda séreign, nýta séreignarsparnaðinn í heild sinni til íbúðarkaupa í fyrstu og lengja líka rétt manna sem eiga íbúðir fyrir til að nýta séreignarsparnað til að greiða inn á íbúðalán skiptir alveg gríðarlega miklu máli.
Í heild sinni hygg ég að óhætt sé að fullyrða að eingöngu þessar aðgerðir séu einhver stærsta aðgerð sem stjórnvöld hafa nokkurn tíma ráðist í til að byggja undir eignamyndun almenns launafólks á Íslandi. Bara þetta atriði ætti að verða til þess að við ættum öll að gleðjast. Það er líka gleðilegt að í þessum kjarasamningum er gengið þannig til verks að launafólki er tryggður ábatinn af því þegar vel gengur.
Hagvaxtaraukinn sem verður á komandi árum mun renna að stórum hluta til íslensks launafólks. Það er gleðilegt þegar næst í frjálsum kjarasamningum að samþætta hagsmuni launafólks og atvinnurekenda og ríkisvaldsins og í rauninni alls opinbera kerfisins við það hvernig gengur í íslensku efnahagslífi. Það er orðið sameiginlegt kappsmál atvinnurekenda og launafólks að stuðla að góðum hagvexti í framtíðinni. Góður hagvöxtur mun tryggja betri lífskjör og þannig er frá málum gengið að íslenskt launafólk mun eiga sinn hlut í því þegar okkur farnast vel.