149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.

[11:54]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Til að byrja með vil ég óska aðilum vinnumarkaðarins til hamingju með að hafa náð því sem lítur út fyrir að vera góður samningur, samningur þar sem bryddað er upp á ýmsum nýjungum eins og hagvaxtarauka og styttingu vinnutíma. Á sama tíma er samningurinn með áhugaverðar áskoranir fyrir stjórnvöld eins og að lækka vexti og halda verðbólgu í lágmarki á sama tíma.

Það er nefnilega markmið Seðlabankans að halda verðbólgunni undir 2,5%, en helsta tæki Seðlabankans til þess er vextir bankans í viðskiptum við önnur fjármálafyrirtæki. Seðlabankinn heldur niðri verðbólgu með því að hækka vexti. Áskorunin um lága vexti og litla verðbólgu verður því augljóslega ekki í höndum Seðlabanka heldur ríkisstjórnarinnar. Hvað getur ríkisstjórnin gert til að lækka vexti og minnka verðbólgu? Á heimsvísu eru vextir mjög lágir þannig að verkefnið er greinilega gerlegt. Á sama tíma er hins vegar gert ráð fyrir næstum því 4% verðbólgu á næstunni. Það er langt yfir verðbólguviðmiði Seðlabankans og ef þar á að beita verðbólgustýringartækjum hlýtur maður að búast við vaxtahækkun. Það má hins vegar ekki því að það brýtur gegn markmiðum stjórnvalda um að lækka vexti. Því verða stjórnvöld að gera eitthvað og nú reynir á því að á þeim áratugum sem Ísland hefur glímt við verðbólgudrauginn hefur aldrei fundist varanleg lausn. Núna eftir langvarandi tímabil lítillar verðbólgu, þegar hún er aftur farin að láta á sér kræla, þegar sögur eru á kreiki um undirliggjandi þrýsting um verðhækkanir vegna kjarasamninga, er allt í einu komin lausn.

Lausnina er hins vegar ekki að finna í fjármálaáætlun sem nú er fjallað um í nefndum þingsins. Lausnin hlýtur því að vera viðbót og ég hlakka til að heyra meira um hana því að hún hlýtur að hafa þó nokkur áhrif á fjármálaáætlun og peningastefnu ef út í það er farið.

Það er einmitt sérstaklega fjallað um áhrif launahækkana í frávikssviðsmynd í fjármálaáætlun, hvernig launahækkanir umfram spár Hagstofunnar munu leiða til kaupmáttarhækkunar til skamms tíma en svo éti verðbólgan upp hækkanir. Í þessari sviðsmynd er ekkert minnst á það hvernig eigi að koma í veg fyrir að frávikið gerist eða hvaða viðbrögðum megi beita ef það verður raunin eða hvernig stjórnvöld bregðist við þessum frávikum í stefnu sinni.

Hvernig sem það fer og hvað sem verður hlakka ég a.m.k. til að sjá þessa töfralausn sem leiðir til lægri vaxta og lægri verðbólgu á sama tíma. Sú töfralausn finnst ekki í fjármálaáætlun og ef hún er þar er ríkisstjórnin ekkert að monta sig yfir því að hafa leyst eitt helsta efnahagsvandamál Íslands, háa vexti og háa verðbólgu. Mér finnst frekar ólíklegt að það sé málið. Því ætla ég að giska á að lausnin hafi komið í gegnum aðkomu stjórnvalda að kjarasamningum og sú lausn hlýtur að hafa áhrif á fjármálaáætlun.

Ég er hins vegar ekkert voðalega bjartsýnn á að þessi lausn sé til eins og er. Þegar félagsmálaráðuneytið kynnti sín málefnasvið fyrir fjárlaganefnd í síðustu viku, stuttu eftir að svokallaðir lífskjarasamningar voru kynntir, spurði ég ráðuneytið hvaða áhrif þessir samningar hefðu á málefnasvið ráðuneytisins. Svarið var einfalt: Við vitum það ekki.

Það svar kom mér á óvart því að ýmis atriði samninganna hljómuðu mjög kunnuglega. Ég hafði séð minnst á þau í fjármálaáætlun. Ég velti því fyrir mér hvort þegar væri gert ráð fyrir einhverjum atriðum lífskjarasamninganna í fjármálaáætlun eða hvort það væri viðbót. Það sem kom mér enn meira á óvart var að í lífskjarasamningum er hækkun barnabóta 16% frá árinu 2018. Það er þegar búið að hækka barnabætur um 15% í fjárlögum 2019. Þýðir það þá raunvirðisskerðingu barnabóta út samningstíma lífskjarasamninganna? Ég skil þetta ekki alveg.

Ég sé á vefsíðu Stjórnarráðsins að ríkisstjórnin leggur til 45 aðgerðir til stuðnings lífskjarasamningum en í meðfylgjandi skjali er hins vegar bara að finna 38 aðgerðir. Það er eins og það vanti eina blaðsíðu. Ekki nóg með það. Í lífskjarasamningunum er talað um að skattleysismörk haldist föst að raunvirði í þrjú ár. Á bls. 77 í fjármálaáætlun er hins vegar talað um hækkun persónuafsláttar um 1 prósentustig til viðbótar við lögbundna 3,7% verðlagshækkun. Þar er raunvirðisaukningin tekin burt. Það er augljóslega breyting frá fjármálaáætlun.

Það má eflaust finna fleiri dæmi en tíminn er takmarkaður og þetta ætti að duga til þess að fólk átti sig á ástæðu þess að við þurfum að ræða hvaða áhrif kjarasamningar hafa á fjármálaáætlun sem allt þingið fjallar um þessa dagana. Allar nefndir þingsins eru nú að vinna í að safna umsögnum, fá gesti og spyrja spurninga um úrelta fjármálaáætlun. Ekki úrelt á sömu forsendum og ég nefndi í fyrri umræðu um áætlunina heldur er hún núna að auki úrelt út af kjarasamningum. Fjármálaáætlun sem er úrelt af því að lækkun á áætluðum persónuafslætti er ekki útskýrð, úrelt af því að ráðuneytin geta ekki svarað hvaða áhrif kjarasamningar hafa á málefnasvið þeirra, úrelt af því að það vantar töfralausn í fjármálaáætlun sem á að þurrka út háa vexti og verðbólgu.

Ég spyr því: Hvers konar virðing er borin fyrir tíma þingsins og umsagnaraðila sem þurfa að fjalla um núverandi útgáfu fjármálaáætlunar? Þetta er í alvörunni eins og einhver atvinnubótavinna þar sem við gröfum skurð til þess að moka ofan í hann aftur þegar við fáum loksins að sjá hvaða áhrif kjarasamningar hafa á fjármálaáætlun. Ég ætla að giska á að það verði ekki fyrr en rétt fyrir síðari umr. þegar breytingartillögur streyma inn eins og oft áður, breytingartillögur sem fá engar umsagnir og kollvarpa jafnvel umsögnum ýmissa aðila eins og fjármálaráðs.

Þetta er auðvitað frábært fyrir framkvæmdarvaldið. Alþingi er upptekið í að fara yfir úrelta fjármálaáætlun og svo þegar breytingar koma loks er enginn tími til að fara yfir þær með gagnrýnu og faglegu hugarfari af því að breytingartillögurnar eru yfirleitt ekki settar fram í neinu samhengi. Afleiðingin verður sú að framkvæmdarvaldið gerir það sem því sýnist og Alþingi staðfestir enn og aftur viðurnefni sitt um að vera stimpilstofnun.

Leiðin út úr þessu er að Alþingi segi: Stopp, hingað og ekki lengra. Ef ríkisstjórnin vill fá afgreidda fjármálaáætlun eða fjárlög verður ríkisstjórnin að uppfylla skilyrði laga um opinber fjármál. Þingið verður að fá greinargott yfirlit um þau áhrif sem kjarasamningar hafa á fjármálaáætlun, á stefnu, forgangsröðun, aðgerðir, markmið og mælikvarða, tekjur og gjöld, afkomu og málefnasvið. Allt annað, þangað til þingið fær það yfirlit, er tímaeyðsla, sóun og lítilsvirðing gagnvart mikilvægi Alþingis í stjórnskipun landsins.