aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Virðulegi forseti. Stór skref voru stigin í síðustu viku við undirskrift lífskjarasamnings sem aðilar vinnumarkaðarins komu sér saman um með stuðningi stjórnvalda. Hann er liður í breiðri sátt til áframhaldandi lífskjara til rúmlega þriggja ára. Þessi samningur er ný nálgun að þeirri staðreynd að lífskjör á vinnumarkaði koma við alla þjóðina. Því verða stjórnvöld að vera í sama takti ef vel á að takast til.
Aðkoma stjórnvalda að lífskjarasamningi felur í sér fjölmargar leiðir sem slá taktinn með aðildarfélögum vinnumarkaðarins til að viðhalda stöðugleika. Lífskjarasamningurinn tekur á mörgum leiðum sem liggja allar í átt til þess að viðhalda stöðugleika og sátt. Til þess hefur ríkisstjórnin lagt fram aðgerðir að umfangi um 80 milljarðar á gildistíma kjarasamninga — til að styðja við markmið um stöðugleika og bæta kjör launafólks. Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin leggur upp með eru til að koma til móts við barnafólk og fólk í lægri tekjuhópum.
Framsóknarflokkurinn hefur haft það á stefnuskrá sinni að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölunni. Að því skal stefnt í þeirri sátt sem undir var ritað. Þetta er í samræmi við niðurstöður starfshóps um peningastefnu landsins þar sem segir að húsnæðisverð eigi ekki heima í verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Þetta ýtir undir stöðugleika á húsnæðismarkaði. Auk þess er í lífskjarasamningnum komið inn á 13 önnur úrræði í húsnæðismálum, til stuðnings húsnæðisúrræðum, bæði fyrir kaupendur og leigjendur, með sérstakri áherslu á fyrstu kaup — en þau eiga líka að ná til þeirra sem hafa ekki átt fasteign í fimm ár.
Ríkisstjórnin hefur lagt upp með markviss skref til afnáms verðtryggingar á lánum en samhliða þeim verður ráðist í mótvægisaðgerðir til að standa vörð um möguleika ungs fólks og tekjulágra til að eignast húsnæði. Mikill óstöðugleiki hefur einkennt íslenskan húsnæðismarkað. Fasteigna- og leiguverð hefur hækkað gríðarlega hér á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur skapað ójafnvægi milli eftirspurnar og framboðs. Á landsbyggðinni hefur eftirspurn aukist eftir húsnæði en verðhækkun fasteigna hefur ekki fylgt þeirri þróun sem orðið hefur hér á suðvesturhorninu.
Með aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum er hægt að nálgast stöðugleika sem skapar sátt og traust. Á það hefur skort síðasta áratug. Það umhverfi ætti að stuðla að vaxtalækkun sem gagnast bæði heimilum og atvinnulífinu. Það eykur ráðstöfunartekjur heimilanna og eykur hvata fyrir atvinnulífið til að eflast og huga að nýsköpun og fjárfestingu.
Virðulegi forseti. Bæði ríkisstjórn og aðilar vinnumarkaðarins eru samtaka um að draga úr vægi verðtryggingar. Síðasta áratug hafa enn fleiri tekið undir þau sjónarmið. Það er líka augljóst út frá þeirri mynd sem hefur birst frá hruni. Það er þekkt fyrirbrigði að þegar verðbólga fer af stað aukast lánasöfn bankanna og eignatilfærslur verða frá heimilum landsins til fjármálastofnana. Þetta hefur m.a. orðið til þess að fjölmörg heimili hafa verið keyrð í nauðungarsölu.
Allt samfélagið hefur þurft að bera gríðarlegan kostnað sem kannski hefði ekki þurft að koma til ef þetta hefði ekki verið — þó að fleiri ástæður hafi legið til. Sú sátt sem birtist í lífskjarasamningnum ber merki um vor á vinnumarkaði eftir kvíðvænlegan vetur sem einkenndist af óvissu og svartsýni. Það er öflugri forystusveit félaga á vinnumarkaði og framsýnni ríkisstjórn að þakka að „vorið er komið víst á ný“.