aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér samspil nýgerðra kjarasamninga og fyrirheita ríkisstjórnarinnar þar að lútandi fyrir framlagða fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og þær miklu breytingar sem orðið hafa í hagkerfi okkar á skömmum tíma. Það er kannski það sem umræðan ætti fyrst og fremst að snúast um. Hér hafa verið gefin mjög kostnaðarsöm loforð af hálfu stjórnvalda, ekki bara í tengslum við þessa kjarasamninga heldur almennt varðandi fordæmalausa útgjaldaaukningu ríkissjóðs á næstu fimm árum sem ekki verður séð að nokkur innstæða sé fyrir þegar horft er til þeirrar skýru kólnunar sem á sér stað í hagkerfinu núna.
Það veldur töluverðum áhyggjum þegar við horfum á og lesum umsögn fjármálaráðs um fyrirliggjandi fjármálaáætlun þar sem ítrekuð er gagnrýni sem áður hefur verið sett á fjármálaáætlanir þessarar ríkisstjórnar, að ríkisstjórnin á tímum langs, sterks hagvaxtarskeiðs hafi sett sjálfa sig í spennitreyju eigin fjármálastefnu sem reynir nú á í fyrsta skipti af alvöru þegar kólnar í hagkerfinu og fyrirséð er að hagvöxtur fer minnkandi, jafnvel horfur á litlum sem engum hagvexti eða jafnvel samdrætti á þessu ári og, tekjur ríkissjóðs munu augljóslega dragast saman sem því nemur. Þetta er það sem fjármálaráð varaði stjórnvöld við í síðustu fjármálaáætlun. Þetta er gagnrýni sem sett hefur verið fram á fjármálastefnu þessarar ríkisstjórnar frá fyrstu fjárlögum hennar, að farið væri of geyst og eitt grundvallarviðmið laga um opinber fjármál, um varfærni, væri þverbrotið. Núna stendur ríkisstjórnin með þann kaleik í höndunum að hafa gefið mikil og kostnaðarsöm loforð en eigi eftir að svara grundvallarspurningunni: Hvernig ætla þau hafa efni á loforðunum?
Því miður var ekki neitt að sjá í ræðu hæstv. forsætisráðherra sem gaf neinar vísbendingar um hvar skera ætti niður, hvar hækka ætti skatta. Hvernig á að fjármagna? Hvernig á að tryggja að þau útgjöld eða útgjaldafyrirheit sem stjórnvöld hafa gefið í tengslum við nýgerða kjarasamninga verði ekki bara gúmmítékki?
Víkjum aðeins að kjarasamningunum sjálfum. Ég tek undir með hv. þm. Óla Birni Kárasyni, sem viðraði hér áhyggjur af því að samspil stjórnmálanna og kjarasamninganna væri orðið allt of mikið, að gengið væri fram með pólitískar kröfur við gerð kjarasamninga, sem sannarlega má taka undir, og má auðvitað segja að stjórnvöld hafi strax gefið undir fótinn með í stefnuyfirlýsingu sinni í upphafi þar sem ríkisstjórnin stillti sér upp í lykilhlutverki við úrlausn þessara kjarasamninga. Það vill svo til að þegar horft er til nýgerðra kjarasamninga hafa þeir sennilega sjaldan verið gerðir við hagfelldari kringumstæður. Kaupmáttur er í sögulegu hámarki, atvinnuleysi tiltölulega lágt, efnahagslífið almennt í góðri stöðu þótt kólnandi fari. Í sjálfu sér er ekkert þar sem kallaði á svo víðtæka aðkomu stjórnvalda við úrlausn. En þetta er kannski fylgifiskur þess sem kalla mætti ásýndarstjórnmál nútímans, að ríkisstjórnin skyldi stilla sér upp sem nokkurs konar riddara á hvítum hesti við úrlausn þessara kjaradeilna? (Félmrh.: Og leyst hana.)— Ja, það er nefnilega það góða við það, hæstv. félagsmálaráðherra, þótt ég hafi orðið hér, að í þessum ásýndarstjórnmálum tókst ríkisstjórninni einmitt að pakka saman (Félmrh.: Og leysa …) stefnumálum sínum sem sett voru fram í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í upphafi sem einhvers konar lausnarspili inn í kjarasamninga, sem er svo sem ágætlega vel gert af hálfu hæstv. ríkisstjórnar. (Gripið fram í.) En þá má spyrja: Stóð aldrei til að efna þau loforð öðruvísi en í tengslum við kjarasamninga?
Það má alveg bjóða hæstv. félagsmálaráðherra í pontu ef hann langar til að taka við orðinu. (Gripið fram í.)
En vandinn er hins vegar eftirfarandi; það eru ekki innstæður fyrir loforðunum sem gefin eru. Þar stendur, og ber að hrósa fyrir það, að nú eigi að endurskoða hagspá. Það er augljós þörf á því, ekki er hægt að afgreiða fjármálaáætlun ríkisstjórnar án þess að við fáum nýja hagspá til að vinna með. Það er augljóst að forsendur þeirrar hagspár sem nú er unnið út frá eru algerlega brostnar, og voru brostnar þegar mælt var fyrir fjármálaáætlun stjórnarinnar. Það má spyrja sig þegar kemur að húsnæðismarkaði hvaðan þetta fjármagn eigi t.d. að koma sem boðað er til, og raunar margt gagnrýnisvert sem nefna mætti í aðgerðum stjórnvalda hvað húsnæðismarkaðinn varðar. Hér á að banna tiltekið lánaform, sem kemur augljóslega niður á tekjulægstu aðilum á húsnæðismarkaði. Á sama tíma á að stórauka fjármagn inn í leigulausnir á húsnæðismarkaði. Á sama tíma á að kynna eitthvert nýtt ríkistryggt útlánaform til að vega á móti neikvæðum áhrifum af aðgerðum stjórnvalda sjálfra inn á húsnæðismarkaðinn.
Ég lýsi furðu minni á því af því að mér sýnist þegar þessar aðgerðir eru grannt skoðaður að hér séu ein mestu ríkisinngrip inn í húsnæðismarkaðinn sem við höfum séð fyrr og síðar. Mér finnst dálítið merkilegt að sjá að það sé gert undir formerkjum ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins.
Boðað hefur verið að hér verði byggðar 600–800 íbúðir á ári undir formerkjum stéttarfélaganna til viðbótar við 100–200 íbúðir á ári sem koma inn í gegnum félagslega íbúðakerfið, og það er inn í húsnæðismarkað sem þarf að jafnaði um 1.600 íbúðir á ári. Ég kalla eftir því að áhrif þessa verði metin á byggingarmarkaðinn almennt og hinn frjálsa markað varðandi húsnæði og þá ríkjandi sjálfseignarstefnu sem verið hefur á húsnæðismarkaði um áratugaskeið þar sem fyrir liggur að stór meiri hluti landsmanna vill eiga eigið húsnæði og er ekki að kalla eftir frekari ríkisafskiptum af þessum markaði, að ríkið yfirtaki markaðinn í gegnum leigufélög og félagslegt húsnæði. Það er orðið eitthvað sérkennilegt við húsnæðismarkað sem krefst þess að 50–60% þess húsnæðis sem byggt er á hverju ári séu undir einhverjum félagslegum formerkjum. Lýsir það kannski einhverjum öðrum undirliggjandi vanda en tekjum kaupenda? Lýsir það kannski óstöðugleika, háu vaxtastigi, því að almennt sé erfitt að eignast hér þak yfir höfuðið? Þá væri kannski ástæða til að ráðast að rót vandans en ekki að grípa til svo mikilla opinberra afskipta af húsnæðismarkaðnum sem hér eru boðuð.
Stóra málið í þessu er auðvitað fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þar liggur fyrir að samkvæmt stefnu þarf að skila um 30 milljarða afgangi á ári næstu árin, ofan í bæði mikinn kostnaðarauka og tekjusamdrátt sem fyrirsjáanlegur er vegna kólnandi hagkerfis. Þá spyr maður: Hefði ekki verið skynsamlegra að hlusta á varnaðarorðin í upphafi, á ítrekuð varnaðarorð fjármálaráðs sem hefur það lögbundna hlutverk að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um fjármálaáætlun og ríkisfjármálin í heild í stað þess að festa sig í þeirri spennitreyju sem stjórnvöld hafa gert? Því að það hefur líka komið mjög skýrt fram í þessari umræðu að engar forsendur eru til að endurskoða stefnuna. Staðreyndin er einfaldlega sú að stjórnvöld hafa farið allt of geyst í útgjaldaaukningu og þurfa núna að rifa seglin á sama tíma og hagkerfið er að dragast saman, nákvæmlega það sem varað var ítrekað við strax við fyrstu fjármálaáætlun, við fyrstu fjárlög þessarar ríkisstjórnar. En það er því miður hin klassíska hagstjórn ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins í gegnum áratugina að eyða þeim peningum sem renna inn í ríkissjóð hverju sinni, að þenja út ríkisbáknið á tímum uppsveiflu en þurfa síðan að draga saman þegar kólnar í hagkerfinu.
Það er áhugavert að lesa álitsgerð fjármálaráðs sem varar við því að ríkisfjármálum sé ætlað of stórt hagstjórnarhlutverk, að verið sé að reyna um of að beita hinni keynesísku hagfræði að auka ríkisútgjöld á tímum samdráttar og beita varfærni á tímum uppgangs. Á sama tíma væri þá æskilegt að ríkisfjármálin væru hlutlaus í hagsveiflunni, að unnið væri út frá grunngildum laga um opinber fjármál um festu, gagnsæi og varfærni öllum stundum en ekki að svona mikil lausung væri sýnd í ríkisfjármálunum eins og gert hefur verið á undanförnum árum og að þessi ríkisstjórn blási til stórsóknar í ríkisútgjöldum á þeim sama grunni.
Ég held að það sé brýnt fyrir okkur að fá boðaða, endurskoðaða hagspá sem fyrst inn í þessa umræðu. Það verða að koma skýr svör frá ríkisstjórninni um hvar eigi að bera niður í niðurskurði. Á enn eina ferðina að skera niður í opinberum framkvæmdum, nauðsynlegum innviðaframkvæmdum sem sveltar hafa verið allt of lengi? Á að endurskoða þau loforð sem veitt hafa verið í auknum útgjöldum í tengslum við lengingu fæðingarorlofs, í tengslum við kjarasamninga, í auknum stuðningi við húsnæðismarkað? (Forseti hringir.) Á að svíkja öryrkja eina ferðina enn um nauðsynlega endurskoðun á þeirra kerfi? Hvaðan á fjármagnið til þessara fyrirheita að koma?