149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.

[12:27]
Horfa

Una Hildardóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka forsætisráðherra fyrir greinargóða skýrslu. Ég tel aðgerðir ríkisstjórnarinnar fagnaðarefni, en þar eru miklar kjarabætur fyrir ungt fólk og sérstaklega ungar barnafjölskyldur. Lenging fæðingarorlofs í 12 mánuði er ekki einungis kjarabót fyrir foreldra — sem minnkar bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla — heldur er verið að tryggja rétt barna til að umgangast foreldra sína fyrsta árið. Hækkun hámarksupphæðar mánaðargreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði úr 520.000 kr. upp í 600.000, sem fór í gegn núna um áramótin, gerði það einnig að verkum og tryggði að tekjuhærri foreldrar gætu farið í fæðingarorlof. Hækkun skerðingarmarka barnabóta úr 242.000 upp í 325.000 og hækkun barnabóta um 16% mun ekki bara skila sér til ungra, tekjulágra foreldra heldur allra barnafjölskyldna í landinu. Það tel ég vera fagnaðarefni.

Virðulegur forseti. Vísindamenn hafa áhyggjur af því að konur eignist sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður var. Meðalaldur móður við fæðingu fyrsta barns á Íslandi fer sífellt hækkandi. Með þessum aðgerðum erum við að byggja upp bótakerfi sem nýtist ungu fólki og gerir barneignir að raunverulegum möguleika fyrir ungt fólk sem er nýkomið á vinnumarkað eða er enn í námi. Í framhaldinu er mikilvægt að skoða hvort hægt sé að tryggja meiri rétt fólks til að minnka starfshlutfall við lok meðgöngu þannig að það komi ekki niður á launum fólks eða fæðingarorlofinu sjálfu.

En með boðuðum breytingum á skatt- og bótakerfum mun ungt fólk fá tækifæri til að njóta kaupmáttaraukningar. Eins munu þær auðvelda foreldrum, tekjulágum barnafjölskyldum og ungum foreldrum að ná endum saman. Með þessu leggur ríkisstjórnin áherslu á þann hóp sem setið hefur eftir í kaupmáttaraukningu ef litið er til þess hvernig ráðstöfunartekjur allra aldurshópa hafa þróast frá árinu 1990. Sá hópur er fólk undir þrítugu.

Lækkun tekjuskatts á lægstu laun mun svo koma ungu fólki undir tvítugu vel, ungu fólki sem hefur í dag minna á milli handanna en ungt fólk gerði í byrjun tíunda áratugarins.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum miða sérstaklega að því að aðstoða ungt fólk og tekjulága við að komast yfir útborgunarþröskuldinn. Munu þær koma sér vel fyrir mína kynslóð sem setið hefur eftir frá hruni, kynslóð sem býr enn lengur í heimahúsum en þær sem á undan komu vegna óaðgengilegs húsnæðismarkaðar. Og markmið aðgerðanna er að koma í veg fyrir að húsnæðiskostnaður verði eins íþyngjandi og stór hluti af ráðstöfunartekjum — að ungt fólk komist inn á fasteignamarkað sem fyrst.

Þak yfir höfuðið á ekki að vera lúxus heldur er það grunnþörf alls fólks. Aðgerðir til að minnka þrýsting á leigumarkaði, t.d. í gegnum félagslegt húsnæðiskerfi, eru því sérstakt fagnaðarefni. Tækifæri til að ráðstafa 3,5% af lífeyrisiðgjaldi skattfrjálst til húsnæðiskaupa mun hjálpa þeim tekjulægstu við að brúa bilið þegar á að kaupa fyrstu eign. Mun það stytta þann tíma sem það tekur ungt fólk og tekjulága að spara fyrir fyrstu útborgun.

Þetta úrræði mun þó ekki einungis gagnast ungu fólki heldur einnig þeim sem hafa hrakist af eignamarkaði og hafa ekki átt íbúð í mörg ár. Framlenging heimildar til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á íbúðalán er sömuleiðis sérstakt fagnaðarefni fyrir mína kynslóð, sem og skýrari reglur um leiguvernd á leigumarkaði. Við verðum nefnilega að hafa skýrt val fyrir fólk sem kýs að fjárfesta í einhverju öðru en steinsteypu.

Samhliða öllu þessu er þó mikilvægt að huga að samgöngumálum, nánar tiltekið almenningssamgöngum. Hraðari uppbygging almenningssamgangna er þar lykilatriði, bæði fyrir almenning í landinu og umhverfið.

Virðulegur forseti. Ég er þakklát fyrir þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur boðað til þess að koma til móts við kröfur verkalýðshreyfingarinnar. Ég lít bjartsýn til framtíðar og tel að lífskjarasamningurinn sé skref í rétta átt, skref í átt að jöfnuði í íslensku samfélagi.