aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra skýrslu hennar. Ég óska forystu verkalýðshreyfingarinnar til hamingju með að hafa tekist að hreyfa duglega við ríkisstjórninni í verðtryggingarmálinu. Um leið ber að virða við stjórnina að hún hafi tekið við sér, eins og sést af yfirlýsingu hennar um markviss skref til afnáms verðtryggingar.
Meðal þess sem hæst ber er að fella húsnæðisliðinn úr vísitölunni á nýjum neytendalánum, að afnema eitraða kokteilinn og að kanna áhrif „vísitölubjagans“ svonefnda sem hækkar vísitöluna vegna kerfisbundinnar mæliskekkju.
Húsnæðisliðurinn hefur reynst heimilunum dýrkeyptur. Á árabilinu 2013–2017 lagði hann 118 milljarða aukalega ofan á skuldir heimilanna vegna húsnæðiskaupa meðan almennar verðlagsbreytingar lögðu 15 milljarða ofan á samanlagðan höfuðstól lána. Afnám húsnæðisliðarins kemur seint, eftir að þetta gráðuga skrímsli hefur fengið að ganga laust svo lengi sem raun ber vitni.
Eitraði kokteillinn er líka tekinn út, 40 ára lánin þar sem fyrstu tuttugu og eitthvað árin eru einungis greiddir vextir en ekki króna inn á höfuðstól. Út með hann og húsnæðisliðinn — það eru tvö atriði í tangarsókn gegn verðtryggingunni sem birtist í frumvarpi mínu um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu.
Eftir standa hinir tveir meginþættir tangarsóknarinnar. Þeir eru: Út með óbeinu skattana sem rata beint inn í verðtrygginguna, eins og bensínið, áfengið, tóbakið og kolefnisgjaldið. Og: Út með ofurvexti á verðtryggð lán sem ákveðnir eru án aðhalds af samkeppni og án aðhalds af samanburði við erlenda vexti, enda þykir fyrirkomulag af þessu tagi hvergi mönnum bjóðandi í umheiminum. Ég sakna þess að tekið sé á þessum atriðum í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og hún er veikari fyrir vikið.
Það er verðugt viðfangsefni sem lýst er í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að þróa lánakerfið til þess horfs sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Æskilegt hefði verið að stíga stærri skref í þá átt en boðuð eru. Miðflokkurinn mun fylgjast grannt með því að staðið verði við gefin fyrirheit og mun ganga eftir að árangur náist í þessum efnum.
Þá lýsi ég að lokum, herra forseti, vonbrigðum með að í yfirlýsingu um lífskjör skuli ekki vikið að lífskjörum aldraðra.