149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.

[12:35]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Það voru líklega flestir fegnir þegar fréttir bárust af undirritun kjarasamninga í síðustu viku eftir margra mánaða viðræður. Verkalýðshreyfingin hefur beitt sér mjög fyrir réttindum þeirra sem ekki hafa notið uppsveiflunnar, nokkuð sem full ástæða er til að hrósa henni fyrir. Nú þegar kjarasamningar liggja fyrir má sömuleiðis hrósa bæði verkalýðshreyfingunni og fulltrúum atvinnulífsins fyrir dugnað og öðruvísi nálgun en áður. Það er ekki alltaf sem tekst að sameina fulltrúa launafólks og atvinnurekenda en það tókst þó núna þar sem þau gátu sameinast um að hafna fyrsta útspili ríkisstjórnarinnar og krefjast þess að aðkoma hennar yrði mun afdráttarlausari. Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við. Þannig tókst að draga ríkisstjórnina aftur að borðinu sem lagði þá fram sterkari tillögur, raunar flestar tillögur sem Samfylkingin hefur kallað eftir og lagt fram hér í þinginu, svo sem um hærri barnabætur, lengra fæðingarorlof og haldgóðar húsnæðistillögur. Við í Samfylkingunni fögnum því að okkar tillögur séu nú í raun að ná fram enda sama hvaðan gott kemur og nú er bara að fylgja því eftir.

Það er þó að okkar mati ekki nægjanlega langt gengið og heldur hraustlega mælt að kalla nýgerða samninga lífskjarasamninga. Þótt jákvæð skref séu sannarlega tekin til að laga stöðuna hjá hluta af verst stadda hópnum er stóra myndin því miður enn óbreytt. Samningurinn stendur auk þess veikum fótum. Ekki er enn ljóst hvernig ríkisstjórnin ætlar að fjármagna og framkvæma stóran hluta þeirra verkefna sem lofað er. Að auki, eins og Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, benti á fyrr í vikunni skortir enn tilfinnanlega á að byggja upp traust á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda.

Herra forseti. Staðan er jafnframt sú að fjölmennir hópar eiga enn eftir að semja, þar á meðal fjölmennar kvennastéttir hjá ríki og sveitarfélögum. Það er því miður ekkert í fjármálaáætlun þeirri sem nú er til umfjöllunar sem bendir til þess að stjórnvöld ætli sér að liðka til á sama hátt fyrir samningum á opinbera markaðnum. Raunar virðist ekki heldur vera sem stjórnvöld geri yfir höfuð ráð fyrir launahækkunum opinberra starfsmanna án þess að komi til niðurskurðar á útgjöldum á móti, þ.e. ef launahækkanir þeirra verða meira en 0,5% umfram verðlag. Þessu varar fjármálaráð sérstaklega við í umsögn sinni um fjármálaáætlun og segir að þær aðhaldsráðstafanir sem ríkisstjórnin hefur boðað hjá ríki og sveitarfélögum ef launahækkanir hjá hinu opinbera fara fram úr markmiði kunni að auka atvinnuleysi og hafa þannig neikvæð áhrif á afkomu hins opinbera. Þá er einnig bent á að í áætluninni sé enga umfjöllun að finna um hvernig þessi forsenda er til komin eða skýrt hvernig hún verður útfærð. Staðan er í raun þannig nú að verðbólgan þarf ekki að hækka nema úr 3,3% frá forsendum upp í 3,8% til að það sé ekkert svigrúm til launahækkana hjá opinberum starfsmönnum.

Það er því miður, eins og ég sagði áðan, fullhraustlegt að kalla þetta lífskjarasamning, en samningurinn nær heldur ekki utan um lífskjör allra. Hann nær ekki utan um aldraða og öryrkja og munu greiðslur til þeirra að óbreyttu koma til með að dragast enn lengra aftur úr. Það sama má segja um stúdenta þó að vissulega hafi jákvæð skref verið stigin. Staðreyndin er sú að stúdentar fá ekki hærri grunnframfærslu og verður bág staða þeirra bráðlega að sérstöku rannsóknarefni. Þá er því miður heldur ekkert gert til að ráðast gegn eignaójöfnuði sem er grundvallarréttlætismál í okkar samfélagi.

Herra forseti. Ísland er ekki stórt land, eða öllu heldur er Ísland ekki fjölmennt land, en við erum svo heppin að vera ríkt land, bæði af mannauði og auðlindum. Þess vegna finnst mér alltaf jafn óskiljanlegt að við af öllum þjóðum höfum ekki getað tryggt öllum sómasamleg lífskjör, bara sumum. Við þurfum að auka jöfnuð, við þurfum að skapa aðstæður hér á landi þar sem allir njóta sömu tækifæra, þar sem fólk getur lifað af launum sínum án þess að þurfa að vinna allan sólarhringinn og getur þá heldur notið frístunda og samvista við fjölskyldu. Við eigum að stórefla menntun með áherslu á hugvit og nýsköpun og leggja þannig grunninn að atvinnulífi sem getur staðið undir vaxandi lífsgæðum.

Herra forseti. Mig langar að lokum að nefna fílinn í stofunni, sem er gjaldmiðillinn okkar, sem í raun klýfur þjóðina í tvennt, annars vegar fámenna auðstétt sem getur nýtt sér óstöðugleika hennar og hins vegar allan þorra almennings sem ber á endanum ævinlega uppi kostnaðinn af skakkaföllum hennar. Breyttar forsendur kalla á viðbrögð líkt og fjármálaráð bendir á í álitsgerð sinni. Samfylkingin telur að breyta ætti fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar og breyta lögum um opinber fjármál svo svigrúm skapist til að minnka skaða niðursveiflunnar. Þannig væri hægt að liðka enn frekar fyrir kjarasamningum með skattkerfisbreytingum og fjárfestingum í innviðum, létta undir með verst stöddu hópunum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum og tryggja velferðina í landinu.

Herra forseti. Svo ég endi þar sem ég byrjaði þá gleðst ég auðvitað yfir því að kjarasamningar hafi náðst og þeim góðu og mikilvægu skrefum sem þar eru tekin. En stóra myndin er því miður enn óbreytt og um hana verður áfram tekist; um hægri eða vinstri, íhaldssemi eða frjálslyndi, grundvallarskiptingu og grundvallarleikreglur. Samfylkingin mun áfram berjast fyrir jafnari og betri kjörum fyrir alla.