aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Herra forseti. Ég vil eins og aðrir hér þakka fyrir þessa umræðu og skýrslu hæstv. forsætisráðherra sem var flutt við upphaf hennar og leggja út frá því að ég, eins og aðrir hv. þingmenn sem hér hafa talað, fagna því að komin sé niðurstaða aðila á vinnumarkaði og fagna því sérstaklega að með þessum samningum sé lagður grunnur að áframhaldandi stöðugleika og sókn til betri lífskjara og betra samfélags hér á landi. Ég get alveg tekið undir sjónarmið hv. þingmanna sem sumir hafa rætt um hversu langt ríkisstjórn á hverjum tíma eigi að ganga í því að leggja lið til lausnar kjaradeilu á vinnumarkaði. Ég held hins vegar að við aðstæðurnar nú hafi það verið algerlega óhjákvæmilegt vegna þess að við sjáum veðrabrigði í efnahagslífinu. Ég heyrði reyndar í umræðu um loftslagsmál um daginn að menn ættu að hætta að tala um hlýnun en tala frekar um röskun. Ég myndi segja að það sé röskun í efnahagslífinu sem við verðum öll að láta okkur varða. Þess vegna var það mikilvægt að ríkisstjórnin sem nú situr lagði lóð á vogarskálar þeirrar lausnar sem hér um ræðir.
Við höfum haft hér á landi eitt lengsta hagvaxtar- og stöðugleikatímabil í okkar hagsögu og það er alls ekki sjálfgefið að svo verði áfram. Það þarf líka að huga að því að undirbúa jarðveginn fyrir það að þannig geti það áfram verið. Ég held að við höfum sýnt það á þessu langa hagvaxtarskeiði að við getum með ábyrgri fjármálastjórn og ábyrgum aðgerðum í okkar efnahagslífi vel haft stöðugleika, vel haft aðstæður til að forðast kollsteypur sem við þekkjum allt of vel.
Okkur hefur gengið einstaklega vel. Við höfum gjörbylt undirstöðum efnahagslífsins. Hér eru komnar fleiri stoðir undir efnahagslíf okkar og atvinnulíf. Nægir þar að nefna uppgang ferðaþjónustu sem hefur sannarlega orðið gild stoð. Við höfum sótt fram á ýmsum öðrum sviðum. Við leggjum áherslu í fjármálaáætlun og með aðgerðum þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr á sókn í nýsköpun og rannsóknum. Það mun til framtíðar verða gríðarlega mikilvægt til að viðhalda efnahagslegri stöðu okkar og bæta lífskjör til lengri tíma.
Grunneining samfélags okkar, heimilin og fyrirtækin, stór og smá, hefur notað undanfarin ár til þess að styrkja sína stöðu verulega. Skuldir heimila hafa lækkað. Þær eru núna í einstaklega góðri stöðu, raunar sögulegu lágmarki. Það er gríðarlega mikilvægt þegar við förum inn í þá röskun efnahagslífsins sem nú blasir við okkur. Það eru öll merki þess að aukinn kaupmáttur undanfarinna ára hafi verið skynsamlega notaður, hann hafi verið notaður til að greiða niður skuldir heimilanna en ekki viðstöðulaust verið velt út í aukna þenslu og neyslu eins og stundum hefur brugðið við og við gengið ótæpilega um. Hann hefur fyrst og fremst verið notaður til að lækka skuldir og búa í haginn til lengri tíma.
Það var athyglisvert að rýna forsendur þeirrar hagspár sem Hagstofa Íslands kynnti hv. fjárlaganefnd nýlega á fundi og þeirrar hagspár sem liggur undir fjármálaáætlun sem nú er til umræðu í þinginu og átta sig á því að það eru ýmis merki um að við séum farin að breyta hegðun okkar í efnahagslífinu frá því sem áður var. Það vakti sérstaka athygli mína að þegar gengi krónunnar gaf eftir síðla nýliðins árs endurspeglaðist það ekki jafnharðan í hækkandi verðbólgu. Verðbólguspáin sem þá var undirliggjandi hafði raunverulega ekki gengið eftir. Það segir okkur að bæði hefur það sem ég nefndi áðan um aukinn sparnað og niðurgreiðslu skulda skipt miklu máli — sparnaður er núna í efnahagslífinu gríðarlega hár og það er mjög mikilvægt — en líka það, hvort sem við horfum til viðskiptalífsins eða annarra þátta í okkar aðstæðum, að þau fyrirtæki sem selja vörur og þjónustu búa við annað og meira aðhald en áður hefur verið frá hinum opna markaði sem við tökum þátt í. Niðurstaðan varð einfaldlega sú að gengissigi krónunnar síðla árs gátu fyrirtækin ekki velt jafn fast út í verðlagið og þau höfðu áður getað. Það þýddi að verðbólguspáin gekk ekki eftir og verðbólgan reis ekki með þeim hætti sem við þekkjum úr sambærilegum sveiflum. Þetta fannst mér mjög athyglisvert þegar við rýndum stöðu og forsendur þeirrar hagspár sem við vinnum eftir.
Hæstv. forsætisráðherra nefndi það í upphafi skýrslu sinnar að nú væri verið að endurmeta þessa hagspá. Ég verð að segja, virðulegur forseti, að ég er ekkert sérstaklega svartsýnn á þá endurskoðun. Ég held að margir þættir í okkar þjóðlífi og efnahagslífi standi það styrkum fótum að við eigum ekki fyrir fram að ætla að það verði endilega slæm niðurstaða úr þeirri endurskoðun. En við bíðum hennar og tökumst á við hana þegar hún liggur fyrir.
Í annan stað kom fram hjá fjármálaráði, þegar það flutti sitt álit um fjármálaáætlun í heimsókn til fjárlaganefndar í gær, að okkur hefur því miður ekki alltaf tekist að vera nákvæm í spám okkar um hagvöxt. Okkur hættir til að ofmeta hagvöxtinn í uppsveiflunni en vanmeta hann í niðursveiflunni. Það eru skilaboð fjármálaráðs sem ég held að við eigum að taka mjög alvarlega og láta það okkur að kenningu verða þannig að við séum ekki með afgreiðslu okkar á fjármálaáætlun til næstu fjögurra, fimm ára að grípa inn í þannig að við mögnum niðursveifluna, sem við gætum hugsanlega gert með því að kippa hraustlega að okkur hendinni.
Það eru fjölmargar tillögur og aðgerðir sem hafa verið lagðar undir í kjarasamningunum með aðkomu ríkisstjórnarinnar eins og tillögur um húsnæðismál sem eru enn óútfærðar. Ég ætla hins vegar að vekja athygli á því að það eru verulegir fjármunir í fjármálaáætluninni til þess að mæta verkefnum á sviði húsnæðismála. Ég held að það sé aldrei of oft tíundað að við höfum látið okkur þau mál varða. Það má hins vegar deila um leiðir og við munum áfram gera það.
Kjarninn í þessu öllu er samt sá að heimilin hafa aukið sparnaðinn og greitt niður skuldir. Fyrirtækin eru í sterkari stöðu. Ríkissjóður er í einstakri stöðu. Hann hefur borið gæfu til að lækka skuldir sínar gríðarlega. Um það vitnar m.a. nýlegt skuldabréfaútboð sem ríkissjóður stóð fyrir og gaf þá niðurstöðu að ávöxtunarkrafa á verðtryggð skuldabréf væri innan við 1%. Það gefur okkur vonir um að sú fyrirætlan eða von okkar um lækkun vaxta sem fylgi þessum kjarasamningum geti gengið eftir.
Ég held, virðulegur forseti, að ef það væri það eina sem við legðum til í kjölfarið á þessum kjarasamningum, að ná lækkun á vaxtastiginu, væri það mesta kjarabót sem hægt væri að færa íslenskum heimilum og íslenskum fyrirtækjum til lengri tíma. Lækkun vaxta, stöðugleiki, ábyrg efnahagsstjórn og raunsæir kjarasamningar, sem ég tel þessa kjarasamninga vera, eru hornsteinninn í því að okkur muni vel farnast og njóta þess að byggja á áframhaldandi stöðugleika og sókn til bættra lífskjara.