aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir skýrsluna og óska henni og ríkisstjórninni til hamingju með góðan árangur í kjarasamningum. Mér finnst leiðinlegt að ráðherra hafi varið svo miklum tíma í ræðu sinni í að kynna tillögur og aðkomu ríkisstjórnarinnar að kjarasamningunum í stað þess að tala meira um hvaða áhrif þetta hefur á fjármálaáætlun.
Þegar lög um opinber fjármál voru sett ríkti skilningur á mikilvægi þess að fjármálaáætlun væri ekki bara til stefnumörkunar heldur væri hún einnig virkt eftirlitstæki með ráðstöfun opinbers fjár, eigna og réttinda. Til að það gangi upp þarf áætlunin að byggja á nákvæmustu fáanlegu upplýsingum hverju sinni. Upplýsingar um hvað standi til að gera, hvernig standi til að gera það og hvers vegna verða að koma fram í áætluninni, hvort sem það er pólitískt hentugt að þær séu aðgengilegar almenningi eða ekki. Þingið verður að geta gengið út frá því að þær upplýsingar sem það hefur til meðferðar séu réttar.
Þegar litið er til þessarar fjármálaáætlunar grunar mann þó að vísvitandi sé verið að halda upplýsingum utan hennar. Á tveimur stöðum í fjármálaáætlun er talað um ástandið á flugmarkaði og þau vandkvæði sem það gæti valdið án þess að fram komi nokkurs konar spá um heildaráhrifin á hagkerfið og á ríkisreksturinn ef annað tveggja stóru flugfélaganna yrði gjaldþrota. Auðvitað færi ekki vel á því að spá beinlínis fyrir um fall WOW í opinberum gögnum áður en gerist en það er mikilvægt að það sé hægt að sjá á trúverðugan hátt að ríkissjóður ráði við áhrifin af slíku falli.
Sömuleiðis er á 35 stöðum í áætluninni rætt um áhrif kjarasamninga á ríkisrekstur en í stað þess að útskýra fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga er eingöngu vísað til þess að ríkissjóður muni taka á sig verulegar skuldbindingar með lækkun tekna og auknum útgjöldum til að greiða fyrir gerð yfirstandandi kjarasamninga.
Slíkar handaveifingar segja samt ekkert um aðgerðir. Að einhverju leyti er það skiljanlegt, ríkisstjórnin vill halda að sér spilunum þegar birting þeirra getur haft áhrif á niðurstöður samninga. Hér eru því þrjú sjónarmið sem virðast ósamrýmanleg; að upplýsingar berist til þingsins um hver markmið ríkisstjórnarinnar eru í fjármálaáætlun til að fyrirsjáanleiki ríki í samræmi við lög um opinber fjármál, að tímabundinn trúnaður haldi um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst bjóða til að höggva á hnúta í samningaviðræðum á atvinnumarkaði og að almenningur sé upplýstur um ástand hagkerfisins að því leyti sem það er raunhæft án þess að neikvæðar væntingar hafi áhrif á markaðsstöðu fyrirtækja og hagkerfið heilt yfir.
Það virðist ekki vera hægt að uppfylla þessi markmið öll samtímis en ef það er ekki hægt er nauðsynlegt að við eigum samtal um verklag og aðferðafræði í þeim tilgangi að reyna að tryggja eins gott upplýsingaflæði og eins mikinn fyrirsjáanleika og hægt er. Grunnforsendan hlýtur að vera heildstæð upplýsingagjöf ríkisstjórnarinnar til þingsins.
Öllum er ljóst að ríkisstjórnin segir varla fyrir fram nákvæmlega til hvaða aðgerða þurfi að grípa á vinnumarkaði svo samningar náist og að sama skapi er erfitt að segja nákvæmlega til um áhrif af gjaldþroti eins stærsta vinnustaðar landsins. Engu að síður höfðu ráðherrar ríkisstjórnarinnar flaggað ýmsum aðgerðum áður en til kastanna kom og varla voru þær hugmyndir úr lausu lofti gripnar. Það hlýtur að hafa verið til einhvers konar sviðsmyndargreining eða ég vona það a.m.k. innilega.
Það er ástæða til að fagna mörgum af aðgerðunum sem ríkisstjórnin hefur boðað vegna kjarasamninganna en það er nánast ómögulegt að trúa því að þessar hugmyndir hafi ekki verið unnar með miklum fyrirvara og það er með öllu óljóst að það hefði haft neikvæð áhrif á gang kjarasamninga að upplýsa um þessar aðgerðir á sama hátt og upplýst var um gerð nýs tekjuskattsþreps. Það hefði jafnvel getað flýtt fyrir kjarasamningunum.
Fjármálaáætlun getur ekki verið ein ríkisútgáfa af framtíðarhorfum hagkerfisins. Hún verður að taka ólíkar sviðsmyndir til greina og sýna áhrif þeirra. Annars er ekki hægt að trúa þessari áætlun. Ríkisstjórnin þarf að leggja fram trúverðuga fjármálaáætlun sem þingheimur treystir. Þetta margumrædda traust verður ekki eflt með því að setja ekki áætlanir í fjármálaáætlun.
Skilaboð mín til hæstv. forsætisráðherra eru einföld: Trúverðugleiki fjármálaáætlunar er mikilvægur en sá trúverðugleiki er ekki til staðar ef ríkisstjórnin sveipar leyndarhjúpi yfir risastór atriði sem geta haft áhrif á afkomu ríkissjóðs og afkomu allra Íslendinga. Það að eiga þetta samtal við þingið með opnum og heiðarlegum hætti er mikilvægt. Ekki skorast undan.
Ég vona að í seinni ræðu sinni komi hæstv. forsætisráðherra meira inn á það hvaða áhrif þetta hefur á fjármálaáætlun og hvernig við eigum að geta sinnt okkar hlutverki sem eftirlitsaðilar til að sjá hvað er raunverulega að fara að gerast hérna á næstu árum.