aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég ætla að fjalla um stuðning stjórnvalda við lífskjarasamninginn. Sá aðgerðapakki sem stjórnvöld leggja fram er upp á eina 80 milljarða á samningstímanum og er óhætt að kalla þetta tímamótaplagg. Þessi pakki hefur að geyma tugi aðgerða sem styðja við markmið um stöðugleika og bætt kjör launafólks sem lengi hefur verið ákall eftir.
Alls eru þetta 38 metnaðarfullar aðgerðir sem snerta marga og ólíka fleti samfélagsins. Ég nefni hér tekjuskatt, þar sem ætlunin er að koma á fót þriggja þrepa skattkerfi með nýju lágtekjuþrepi sem gagnast sérstaklega þeim tekjulægstu. Ég nefni lengingu fæðingarorlofs úr níu mánuðum í tíu í byrjun árs 2020. Í byrjun árs 2021 verður fæðingarorlofið 12 mánuðir. Við Framsóknarmenn höfum lengi barist fyrir lengingu fæðingarorlofs og því er þetta mjög ánægjulegt.
Skerðingarmörk barnabóta munu hækka um upp í 325.000 á mánuði árið 2020.
Hvað varðar húsnæðismálin langar mig að minnast á úrræði fyrir fyrstu kaupendur sem geta fengið sérstök lán eða nýtt hluta af lífeyrisgjaldagreiðslum sínum til að fjárfesta í fasteign. Þessar aðgerðir gagnast sérstaklega ungu fólki og tekjulágum einstaklingum.
Þróun Keldnalands undir íbúabyggð er samvinnuverkefni ríkis og Reykjavíkurborgar og er líka jákvætt skref í húsnæðismálum. Það er greinilegt að stjórnvöldum er alvara með að nálgast verkefnið um bætta hagstjórn og að tryggja hér stöðugleika.
Í lið 32 kemur fram að heildarsamtök á vinnumarkaði verði, með leyfi forseta:
„aðilar að Þjóðhagsráði sem hafi útvíkkað hlutverk með það að markmiði að styrkja samhæfingu hagstjórnar og ákvarðana á vinnumarkaði með hliðsjón af efnahagslegum og félagslegum stöðugleika.“
Við þurfum nefnilega víðtækan samtakamátt til að tryggja efnahagslega velsæld og aukna verðmætasköpun. Það er forsenda fyrir því að hægt sé að skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta sem heimilin í landinu hafa lengi kallað eftir.
Aðkoma stjórnvalda snýst líka um að stuðla að verðstöðugleika en gjaldskrá ríkisins mun ekki hækka á árinu 2019 umfram það sem þegar hefur komið til framkvæmda. Kallað er eftir því að fyrirtæki á markaði axli ábyrgð á þróun verðlags og gengið er út frá því að svo verði.
Varðandi einföldun á regluverki og eftirliti er m.a. verið að skoða hvort Samkeppniseftirlitið eigi að veita sérstakrar undanþágur frá bannákvæðum laganna eða fyrirtækjum falið að meta sjálf hvort þau skilyrði séu til staðar. Þetta er mjög mikilvægt atriði til að efla hér á landi samkeppnishæfni fyrirtækja sem eiga í harðri samkeppni erlendis frá, framleiðendur og neytendum hér heima til heilla.