149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.

[13:00]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Það er ánægjulegt að kjarasamningar hafi náðst milli verkamanna, verslunarfólks og skrifstofufólks annars vegar og atvinnurekenda hins vegar og óska ég þeim og fulltrúum þeirra til hamingju með þá.

Hinir svokölluðu lífskjarasamningar eru sem sagt á milli þessara aðila og það er áhugavert þegar maður heyrir hér pólitíska flokka lýsa því yfir að þeir séu þeim ekki sammála, eins og Samfylkingin gerði hér áðan. Ég tel hins vegar margt gott í þessum samningum sem náðust, til að mynda áhersluna á hækkun lægstu taxta, launaþróunartryggingu fyrir taxtalaun og opnun á styttingu vinnuvikunnar í gegnum vinnustaðalýðræði. Einnig er ákvæði kjarasamninga um svokallaðan hagvaxtarauka þannig að launahækkanir haldist í hendur við hagvöxt. Það er áhugaverð nýjung, sem og sú nýja nálgun sem hæstv. forsætisráðherra fór yfir í upphafi er varðar aðkomu ríkisstjórnar að þeirri niðurstöðu sem hér náðist.

Það var auðvitað framlag ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sem má meta upp á í kringum 80 milljarða kr. Má þar nefna breytingar á skatt- og stuðningskerfum sem voru gerðar með hagsmuni ungs fólks, tekjulágra og barnafjölskyldna að leiðarljósi, en þær koma líka eldri borgurum og öryrkjum til góða. Lækkun skatta á þá tekjulægstu um 10.000 kr. og hækkun barnabóta og skerðingarmarka þeirra eru dæmi um slíkar breytingar.

Aðgerðir í húsnæðismálum eins og aukning stofnstyrkja til uppbyggingar félagslegs húsnæðis, skýrari reglur um leiguvernd og ráðstöfun ríkislóða fyrir m.a. leiguíbúðir, munu stuðla að heilbrigðari leigumarkaði og gefa þessum hópum aukið val í húsnæðismálum.

Við horfum sannarlega upp á loðnubrest sem er vissulega skellur. Áætlað er að um 18 milljarðar af útflutningsverðmætum muni tapast vegna hans sem mun hafa áhrif bæði á ríkissjóð og auðvitað á örfáar byggðir í landinu. Gjaldþrot WOW air var líka ákveðið högg fyrir hagkerfið en ekki síst mikið áfall fyrir það fólk sem missti vinnuna vegna þess.

Ríkisstjórnin sat ekki auðum höndum í kringum gjaldþrot flugfélagsins. Aukið fjármagn var sett til heilbrigðisstofnana og Vinnumálastofnunar, umsóknarfrestur í Lánasjóð íslenskra námsmanna hefur verið lengdur og nám og námsaðstaða efld. Ráðherrar hafa m.a. fundað með fulltrúum stofnana og sveitarfélaga á Suðurnesjum og þetta eru bara örfá dæmi um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur gripið til vegna gjaldþrotsins. Hækkun atvinnuleysisbóta og hámarksgreiðslna úr Ábyrgðasjóði launa sem átti sér stað í fyrra er einnig breyting sem skiptir miklu máli hvað þetta varðar.

Virðulegi forseti. Fjárlaganefnd hefur nú fjármálaáætlun til umfjöllunar. Þar komum við til með að meta þessa þætti eins og kom fram í orðum hæstv. forsætisráðherra. Það má ekki gleyma því að nú þegar er margt af þessu inni í áætluninni og tekið tillit til þess. Það er ekki eins og öll þessi aðkoma sé fyrir utan.

Þó að áföll hendi samfélagið er samt ástæða til að vera jákvæður þegar heildarmyndin er skoðuð. Hagkerfið okkar er sterkt og við í stakk búin til að takast á við þau verkefni sem þessu fylgja. Atvinnuleysi er nokkuð lágt sem mun þá vonandi gefa þeim tækifæri til að komast aftur út á vinnumarkaðinn sem misstu störfin. Fréttir um að flugfélögin séu að auka ferðir til og frá landinu og jafnvel að ný flugfélög séu að fljúga til landsins verða vonandi til þess að þetta högg hafi eins alvarleg áhrif á afleidd störf og óttast var.

Nýlega komu einnig þær góðu fregnir að makrílstofninn væri nokkru stærri en áður var áætlað. Þá kemur opinber fjárfesting á hárréttum tíma inn í hagkerfið. Gert er ráð fyrir að innspýting hins opinbera muni skapa í kringum 300 störf í byggingargeiranum strax í ár og um 600 fram til ársins 2021.

Ég trúi því svo að hin félagslega fjárfesting ríkisstjórnarinnar muni ekki bara auðvelda fólki lífið heldur líka hafa jákvæð áhrif á hagkerfið.

Herra forseti. Áföll eru því miður óumflýjanlegur partur af lífinu. Það sem skiptir fyrst og fremst máli er hvernig við bregðumst við slíkum áföllum. Ég tel að ríkisstjórnin hafi brugðist hárrétt við. Þetta er ríkisstjórn sem hefur starfað í eitt ár og fjóra mánuði og hefur komið gríðarlega miklu í verk. En auðvitað er margt óunnið og við munum hér eftir sem hingað til standa vaktina undir forystu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.