aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Herra forseti. Um leið og ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir umræðuna vil ég byrja mína ræðu hér í dag á því að fagna nýgerðum kjarasamningum sem eru nýstárlegir að mörgu leyti og bera því nýja fólki sem á undanförnum misserum hefur valist til forystu í verkalýðsfélögunum gott vitni um framsýni og áræðni við að leysa þann hnút sem lengi vel leit út fyrir að vera óleysanlegur.
Ég vil því nota þetta tækifæri til að óska öllum samningsaðilum innilega til hamingju, herra forseti. Víða er þó við erfiðleika að etja og ber þar hæst atvinnuástandið á Suðurnesjum í kjölfar falls WOW air, eins og margir ræðumenn hafa komið inn á. Ég legg þunga áherslu á að stjórnvöld leggi þar sitt af mörkum á þann hátt að alls ekki komi til niðursveiflu á svæðinu suður með sjó.
Herra forseti. Ég vil sérstaklega nota ræðutímann hér til að ræða loðnubrestinn í vetur og vor þar sem í fyrsta skipti í fjölmörg ár voru ekki leyfðar veiðar úr loðnustofninum. Loðnuveiðar hafa um árabil verið burðarás í atvinnulífi í nokkrum sveitarfélögum úti á landi, sérstaklega á Suður- og Austurlandi. Það er ekki bara loðnan sem lætur ekki sjá sig heldur er einnig svo með humarinn. Fyrir átta árum veiddust yfir 2.000 tonn af humri hér við land en ráðgjöf ársins gerir ráð fyrir 235 tonnum, um 10% af því sem veiddist fyrir örfáum árum. Hér er líka um hrun á verðmætum stofni að ræða og kemur tiltölulega verst við byggðir á sunnanverðu landinu. Vil ég þar nefna t.d. Höfn í Hornafirði og Vestmannaeyjar.
Herra forseti. Hrun á þessum stofnum er mikið áfall fyrir þessar byggðir og kemur fram í verulegu tekjutapi í viðkomandi sveitarfélögum en einnig hjá sjómönnum, fiskverkafólki og íbúum og hefur mikil áhrif á bæjarbrag þessara sveitarfélaga. Ríkisstjórnin ætlar í engar sérstakar aðgerðir vegna þessa. Hún segir að veiðar séu háðar sveiflum í náttúrunni og að þeir sem byggja afkomu sína á veiðum verði að vera í stakk búnir til að taka þessar sveiflur.
Herra forseti. Margt annað má gera eða láta ógert. Í þessu ljósi er t.d. ekki unnt að fara fram á minna en að stjórnvöld leggi til hliðar allar hugleiðingar um skert framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þá má efla hafrannsóknir og auka þar með þekkingu okkar á auðlindum hafsins sem við höfum lifað af um aldir. Rannsóknir á loðnustofninum þarf til að mynda að stórauka og nýja aflareglan kallar á auknar rannsóknir, auk þess sem leitast verður við að minnka óvissuna í loðnumælingum.
Herra forseti. Það mætti endurskoða álagningu kolefnisgjalds á sjávarútveginn, ekki síst vegna þess að sú atvinnugrein hefur minnkað útblástur sinn um 54% frá 1990, með hagræðingu, nýjungum í tækni og nýjum skipum, og þannig farið langt umfram þær kröfur sem gerðar eru í Parísarsamkomulaginu en þarf samt að þola mikla hækkun kolefnisgjalds og áfram skal haldið með það. Hver er tilgangurinn? Byggir álagning kolefnisgjalds í þessari atvinnugrein á einhverjum sérstökum rannsóknum á umhverfislegum árangri? Eða er þetta enn einn skatturinn? Stjórnvöld gætu einnig lagt til hliðar fyrirætlanir um niðurlagningu opinberra starfa úti á landi meðan stöðugt er bætt í á höfuðborgarsvæðinu og má þar nefna nýlegt dæmi úr Vestmannaeyjum, um fækkun sýslumannsembætta.
Herra forseti. Við stöndum frammi fyrir viðsjárverðum tímum fyrir atvinnulífið í landinu. Miðflokkurinn leggur þunga áherslu á að stigin verði miklu stærri skref í lækkun tryggingagjaldsins en verið hefur með það fyrir augum að fyrirtækin í landinu séu í betri færum til að hækka laun, fjölga starfsfólki og ráðast í fjárfestingar til að auka framleiðni.