149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.

[13:09]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Þeir lífskjarasamningar sem gengið var frá fyrir nokkrum dögum eru í raun tímamótasamningar. Ég hef þá trú að þessir samningar eigi eftir að hafa áhrif á gerð kjarasamninga til lengri tíma. Til þeirra á eftir að verða horft sem módels sem mögulega markar upphaf að nýjum tímum í nálgun við gerð kjarasamninga, mögulega breytingum á vinnulöggjöf okkar. Það eru margir þræðir sem liggja í þessu máli og mörg af stefnumálum ríkisstjórnarinnar sem birtast okkur í þessu samstillta átaki aðila vinnumarkaðarins og forystumanna ríkisstjórnarinnar. Þar má nefna þætti eins og áherslur á aðstæður barnafólks, aðstæður ungs fólks. Þar ber hátt lengingu fæðingarorlofs og hækkun barnabóta og kannski síðast en ekki síst þá miklu áherslu sem lögð er á að hjálpa fólki að koma sér þaki yfir höfuðið. Við Sjálfstæðismenn fögnum því auðvitað mjög að séreignarstefnan er ákveðið leiðarljós í gegnum húsnæðisþátt samninganna. Þar birtist hvati til séreignarsparnaðar, opnað er fyrir nýtingu á honum, skattalegar ívilnanir. Fólk er hvatt til að auka sparnað sinn og ráðstafa honum síðan í fasteignakaup. Einnig er gripið til sérstakra ráðstafana með eignaþátttöku ríkisins til að stuðla að auknum möguleikum þeirra sem lægri hafa launin og erfiðara eiga með að eignast eigið húsnæði, að geta tekið þátt í því. Það er óumdeilt að staða þeirra sem eiga eigið húsnæði í gegnum lífshlaupið þegar kemur á efri ár er miklu betri en hinna sem hafa verið á leigumarkaði.

Það er líka staðreynd að þarna er verið að svara þeim augljósa vilja, sem birtist okkur í skoðanakönnunum, að fólk vill að langstærstu leyti búa í eigin húsnæði. Þessu fylgir síðan einföldun á regluverki í byggingariðnaði og það er áhugavert að tengja það við nýlegan samning iðnaðarráðherra við OECD þar sem fer fram samkeppnismat á regluverki í ferðaþjónustu og byggingarstarfsemi. Við það eru bundnar miklar vonir og talið að það muni taka um eitt og hálft ár, módel sem OECD hefur keyrt í fleiri löndum með góðum árangri.

Það verður ekki horft á þetta öðruvísi en að nefna síðan skattalækkanir. Það er mikill áfangi og fagnaðarefni að aðilar vinnumarkaðarins lögðu mikla áherslu á þennan þátt. Sérstaklega snýr það að kjörum lágtekjufólks sem síðan hefur gríðarmikil áhrif inn í hóp eldri borgara og öryrkja þar sem aðrar ráðstafanir, sem unnið er að á vettvangi ríkisstjórnarinnar, munu hvetja til frekari þátttöku á vinnumarkaði og vonandi eiga stóran þátt í því að snúa við þeirri neikvæðu þróun sem hefur verið í þessum málaflokkum. Það byggist í þessu öllu hvati til frekari verðmætasköpunar, hvati til þátttöku á vinnumarkaði. Það er gríðarlega mikilvægt að skattkerfið okkar virki ekki letjandi á þeim vettvangi. Þetta er því risastórt skref í þá átt að efla þátttöku fólks á vinnumarkaði til framtíðar. Hér hefur verið rætt nokkuð um áhrif á fjármálaáætlun og auðvitað hafa orðið ákveðin áföll. Við höfum farið í gegnum áföll á þessu ári innan ferðaþjónustunnar og innan sjávarútvegsins. Þar eru gjaldþrot WOW og loðnubrestur efst á blaði. Sú ábyrgð og sá agi sem hefur einkennt rekstur ríkissjóðs á undanförnum árum gerir það að verkum að við erum betur í stakk búin til að takast á við þessi stóru verkefni en áður.

Það er líka gott að minnast þess í þessu sambandi að það er mikilvægt að í sjávarútvegi, þrátt fyrir loðnubrest, skuli vera öflug, stór og sterk fyrirtæki sem geta tekist á við þennan vanda og geta haldið fólki á launaskrá án þess að hafa nokkrar tekjur. Þetta er gríðarlega mikilvægt.

Ekki er hægt að komast hjá því að minnast á þann skattasöng sem hefur verið hér á undanförnum árum þar sem talað hefur verið um að auka mjög skattálögur einmitt á fyrirtæki í ferðaþjónustu og í sjávarútvegi. Sumir þingmenn hafa gengið svo langt að tala um að verið sé að kasta frá sér tekjum. Nú kemur sér vel að ríkisvaldið hafi frekar byggt undir þessar atvinnugreinar.

Það er engin innstæða fyrir því að það sé verið að rifa seglin hjá ríkisstjórninni. Það er miklu frekar hægt að ræða þau mörgu mál sem eru vísbending og staðreynd um að það er verið að auka í framkvæmdir í samgöngumálum, í heilbrigðiskerfi og menntakerfi. Það er hægt að fara núna í sókn þegar hagkerfið er heldur að kólna.

Það sem mér finnst standa upp úr og hefur ekki mikið verið rætt í tengslum við þessa kjarasamninga en styður við það sem ég sagði hér fyrst er að nálgunin er byltingarkennd. Það er þessi tenging við hagvöxt sem tryggir launafólki hlutdeild í verðmætasköpuninni; þar held ég að við séum að stíga skref breytinga sem geti haft gríðarlega mikil áhrif inn í framtíðina. Það er sem sagt orðið núna að grundvallarnálgun í kjarasamningum að menn sameinist um að stækka kökuna í stað þess að rífast um það hver eigi að fá stærri sneið af köku sem ekki er að stækka. Það ætti því að marka ákveðin tímamót í eflingu verðmætasköpunar í samfélaginu þar sem aðilar vinnumarkaðarins, Samtök atvinnulífsins, samtök launþega ásamt ríkisvaldi snúa bökum saman um að skapa sem bestar aðstæður fyrir verðmætasköpun í landinu þannig að hér geti átt sér stað betri lífskjarabót fyrir alla hópa samfélagsins ásamt því að fjölga stoðum undir íslensku hagkerfi og íslenskri verðmætasköpun.

Það má segja að sjómenn og útgerðarmenn hafi unnið eftir þessu módeli í mörg ár þar sem sjómenn fá hlutdeild í því ef þeir koma með aukin verðmæti að landi. Við höfum gagnrýnt bónuskerfi sem hafa verið í mörgum atvinnugreinum en samt sem áður má leiða líkur að því að það sé nokkuð líkt með þessu bónuskerfi sem hefur verið á vinnumarkaði og því sem verið er að innleiða hér, (Forseti hringir.) að það er verið að innleiða ákveðið bónuskerfi fyrir þjóðina alla, auðvitað ekki af þeirri stærðargráðu sem við höfum gagnrýnt og okkur er ekki ofarlega í huga. Þessi þátttaka — ég held að þetta geti markað mikil tímamót í framtíðinni.