aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Virðulegi forseti. Lífskjarasamningarnir sem við ræðum hér eru afurð breiðrar samvinnu og er niðurstaða hennar mikið fagnaðarefni. Það sem ég er hvað ánægðust með er að í samningunum og stuðningsaðgerðum stjórnvalda tekst að flétta saman ýmis samfélagsleg markmið sem hafa jákvæð áhrif í samfélaginu, langt út fyrir þann hóp sem átti fulltrúa við samningaborðið.
Í niðurstöðunni eru einnig hvatar til áframhaldandi þróunar samfélagsins og vinnumarkaðarins, svo sem til styttingar vinnuviku og fleiri aðgerða.
Ekki skemmir að margar aðgerðirnar sem nú er unnið að því að útfæra falla vel að stefnu Framsóknarflokksins og fylgja eftir stefnu ríkisstjórnarinnar. Hér vil ég sérstaklega líta til aðgerða sem hafa mikil áhrif á velferð barna, lengingar fæðingarorlofs, breytinga á barnabótum og tillagna starfshóps um að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að eignast húsnæði.
Velferð barna er grunnur að góðu samfélagi og því betur sem til tekst við að skapa umhverfi sem tryggir börnum öryggi, stöðugleika og jafna stöðu frá fæðingu, því minni þörf verður fyrir sérstakan stuðning við einstaklinga. Ég lít því á þessar tillögur og aðgerðir sem grunn undir þá vinnu sem nú er unnin í þverpólitískri nefnd um málefni barna. Nefndin vinnur að endurskoðun á félagslegri umgjörð og stuðningi við börn á Íslandi með áherslu á snemmtæka íhlutun og samvinnu.
Nú er gert ráð fyrir að fæðingarorlof lengist, fyrst í tíu mánuði en síðan í 12 á árinu 2021. Áfram er gert ráð fyrir að hvort foreldri fyrir sig eigi sjálfstæðan rétt til töku fæðingarorlofs en hluti orlofsins verði til skiptanna. Foreldrar og börn hafa hingað til oft lent í tómarúmi milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar og hefur það valdið róti í lífi barna og bæði skapað óvissu og tekjutap fyrir fjölskyldur. Við breytinguna myndast líka hvati til sveitarfélaganna til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla, en að því hafa þau mörg unnið lengi. Nú er kominn raunhæfur grundvöllur til að ljúka verkinu.
Ég vil leggja áherslu á að samhliða lengingunni verði horft til endurskoðunar upphæða lágmarksgreiðslna og endurskoðunar skilyrða vinnumarkaðstengingar orlofsins í ljósi þess að það kunni að vera sameiginlegir hagsmunir fjölskyldna og vinnumarkaðarins að foreldrar geti tekið fæðingarorlof samhliða námi eða í lok lengra náms. Eins og staðan er núna fá þeir sem eru í þessari stöðu mun lægri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Ég held að þetta sé atriði sem mjög mikilvægt er að útfæra. Lenging fæðingarorlofs og hærri lágmarksgreiðslur tel ég að geti dregið úr kulnun á vinnumarkaði í samfélagi sem byggist á mikilli atvinnuþátttöku beggja foreldra samhliða fjölskylduábyrgð. Ég tel gott tækifæri til að gera þetta samhliða þeirri vinnu sem ákveðið er að fara í við að koma hlutdeild tryggingagjalds í fjármögnun almannatrygginga í fastari skorður.
Auk þess sem hér er rætt er gert ráð fyrir að skerðingarmörk barnabóta hækki og þá eru tillögur í húsnæðismálum, sem hvort tveggja mun hafa mikla þýðingu fyrir heimili barnafjölskyldna.