aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra skýrsluna. Kjör fólks, aðbúnaður og líðan starfsfólks á vinnustöðum á að vera forgangsmál í öllum samfélögum. Stærstu kvennastéttirnar í þeim hópi sem bíða nú samninga eru kennarar og heilbrigðisstarfsfólk. Öllum má vera ljóst að allt er í járnum á LSH þar sem mönnunarvandinn er mikill. Stofur eru lokaðar af því að það vantar fólk til að vinna og alls konar nýstárlegar vaktir eru innleiddar, aukavaktir, bakvaktir og viðbragðsvaktir.
Líðan fólks í vinnu skiptir miklu máli, líðan starfsfólks er ein meginstoðin fyrir sterkum starfskrafti þannig að störfum sé vel sinnt. Það er nánast öruggt að starfsfólk á Landspítala þarf að vinna við mjög erfiðar aðstæður og miklar líkur á að því líði ekki vel í vinnunni um þessar mundir. Þar er mönnunarvandinn sterkasta vísbendingin og ónæði vegna sprenginga utan dyra hjálpar ekki til. Samgöngur eru erfiðar sökum mikillar umferðar og það er sorgleg staða að bjóða starfsfólki sem og sjúklingum upp á slíkt.
Kennarar eru fjölmenn kvennastétt sem bíður nú einnig samninga. Innan stéttarinnar hefur körlum þó sem betur fer fjölgað. Að mínu mati hafa kennarar ekki notið sannmælis í gegnum árin. Kannanir á námsárangri sýna að fylgni er milli góðs árangurs og góðra kennara. Of fáir hafa gert sér grein fyrir því mikilvæga uppeldishlutverki sem kennarar sinna, hlutverki sem þeir hafa tekið að sér til hliðar við kennslu einstakra námsgreina. Það starf er brýnt.
Vissulega semja sumir kennarar beint við sveitarfélögin. Það breytir því þó ekki að ef ríkisvaldið kemur að kjarasamningsgerð sumra stétta má telja eðlilegt að ríkið hafi einnig einhvers konar aðkomu vegna annarra stétta.
Í ræðu sinni greindi hæstv. forsætisráðherra frá aðkomu ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum. Þó er ljóst að forsvarsmenn ýmissa stéttarfélaga hafa lýst því yfir að lífskjarasamningurinn geti ekki verið forsenda í samningsgerð þeirra. Þau munu m.a. ekki sætta sig við krónutöluhækkanir.
Því vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Mun koma til einhvers konar höfrungahlaups í komandi kjaraviðræðum? Og ef það gerist, hvernig mun ríkisstjórnin bregðast við því?