aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Hæstv. forseti. Ég þakka þessa umræðu og hæstv. forsætisráðherra fyrir að koma hingað með tiltölulega skömmum fyrirvara og flytja okkur skýrslu um lífskjarasamninginn og aðkomu stjórnvalda. Um leið vil ég nota tækifærið og óska aðilum vinnumarkaðarins til hamingju með þennan ábyrga og skynsamlega samning.
Lífskjarasamningurinn er sannarlega réttnefni, virðulegi forseti, þar sem hann snýr að fleiri þáttum en við eigum kannski að venjast í slíkum samningum, vissulega að launum en einnig að fjölmörgum öðrum tengdum atriðum, fyrir heilbrigðari vinnumarkaði, og til þess fallinn að bæta lífskjör. Aðilar vinnumarkaðarins lögðu sig hart fram í þessum samningum og við fengum að fylgjast vel með framvindu mála sem tók allt síðasta ár fram að þeim tíma að samningar voru undirritaðir 3. apríl sl. Allan þann tíma var í gangi lifandi samtal milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem lagði grunninn að aðkomu stjórnvalda og hæstv. forsætisráðherra rakti svo ágætlega í sinni framsögu. Þetta samráð er tímamót.
Hér finnst mér mest um vert að draga fram, virðulegur forseti, þá faglegu nálgun sem einkennir þessa kjarasamninga þegar saman náðist og það eru tímamót. Hin breiða sátt sem felst í þessum samningum er tímamót. Félagslegar áherslur eru tímamót, tenging við verðmætasköpun, hækkun launa og hlutdeild launafólks í verðmætasköpun til framtíðar er tímamót og kjarabætur fara sannarlega mest til ungra barnafjölskyldna og þeirra sem lægri hafa tekjurnar. Það eru tímamót, virðulegi forseti.
Ég vil í þessu samhengi vísa til skýrslu sem Gylfi Zoëga hagfræðingur vann fyrir forsætisráðuneytið þar sem hann dregur mjög skýrt fram stöðuna í íslensku samfélagi, þær efnahagslegu aðstæður og forsendur sem lágu fyrir þessum samningum. Þar dregur Gylfi upp þá mynd sem rökstyður að fleiri þættir þurfi að koma til en bara krónur og aurar þegar kemur að bættum lífskjörum og ekki síður þegar áherslan og markmiðið var frá upphafi að bæta kjör lægri tekjuhópa. Ég held að við blasi nauðsyn og rík ástæða fyrir aðkomu stjórnvalda með jafn áhrifamiklum hætti og birtist í þessum lífskjarasamningum. Gylfi segir þar, með leyfi forseta:
„Þrátt fyrir almenna velmegun hefur verið bent á ýmsa þætti sem hafa neikvæð áhrif á lífsgæði: Hátt fasteignaverð geri ungu fólki erfitt fyrir að koma þaki yfir höfuðið, háir vextir á fasteignalánum geri það erfitt að ná endum saman í lok mánaðar og vísbendingar eru um að streita valdi kulnun í starfi og þar með fjölgun veikindadaga.“
Það er svo fjölmargt í þessum lífskjarasamningi sem er einmitt til þess fallið að bregðast við þessum atriðum til bættra lífskjara. Það eru sannarlega tímamót í þessum samningum, virðulegi forseti, þar sem hér er lagður grunnur að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika.