aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og tengd mál, munnleg skýrsla forsætisráðherra. -- Ein umræða.
Herra forseti. Ég þakka ágæta umræðu þar sem komið var inn á ótrúlega mörg atriði, ekki aðeins þau sem sérstaklega var beðið um að um yrði fjallað heldur byggingu nýs Landspítala og margt fleira. Ég get því miður ekki komið inn á öll þessi atriði.
Hér var það gagnrýnt að ekki hefði verið nægjanlega rætt um áhrif kjarasamninga á fjármálaáætlun en ég vil þó rifja upp það sem kom fram í minni fyrri ræðu, og hv. þingmenn hafa kannski misst af, en það er sú staðreynd að búið er að gera ráð fyrir velflestum þeirra verkefna sem eru inni í yfirlýsingu stjórnvalda. Ég nefndi sérstaklega að það sem ekki væri þar inni væri þá sú staðreynd að líklega yrðu áhrif tekjuskattsbreytinga umfangsmeiri en áður hefði verið gert ráð fyrir og sömuleiðis breytingar á barnabótakerfinu sem ekki hefði verið gert ráð fyrir.
Ég fór líka yfir það í nokkuð ítarlegu máli að Hagstofan hyggst flýta gerð nýrrar hagspár þannig að þingið hafi þá nýjustu gögn eftir loðnubrest, eftir gjaldþrot WOW air og eftir kjarasamninga til að ljúka þinglegri meðferð fjármálaáætlunar. Ég heyrði líka að sumum hv. þingmönnum finnst ekki að fjármálaáætlun eigi að vera eins og trúarrit en aðrir virðast líta á hana sem trúarrit sem er áhugaverð klípa í sjálfu sér. Fjármálaáætlun er ekki trúarrit, hún er áætlun og við verðum að sætta okkur við það, hvað sem okkur finnst, að hún hlýtur alltaf að byggja á nýjustu hagspám — þannig er veruleikinn og þær geta breyst með því sem gerist í raunveruleikanum. Hvort sem okkur finnst það betra eða verra er það bara þannig og ég held að þetta hafi komið nokkuð skýrt fram, sömuleiðis sú staðreynd að í fjármálaáætlun er einmitt verið að bregðast við kólnun í hagkerfinu og þetta er rétti tíminn til að gera nákvæmlega það.
Einhver hv. þingmaður vildi meina að ríkisstjórnin talaði um 45 aðgerðir en þær væru bara 38. Ég vil vekja athygli hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar á að aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru í tveimur skjölum og í öðru eru 38 og í hinu sjö. Það gera 45 ef reikningskunnáttan svíkur mig ekki þannig að ég vek athygli hv. þingmanns á þessu.
Síðan kvörtuðu einhverjir hv. þingmenn yfir því að ríkisstjórnin væri að tala um lífskjarasamninga. Ég ætla þá bara að upplýsa hv. þingmenn um að það eru aðilar vinnumarkaðarins sem tala um lífskjarasamninga og ríkisstjórnin kynnti sína yfirlýsingu í tengslum við það þannig að ég held að þeir verði að vísa þeirri gagnrýni til verkalýðshreyfingarinnar.
Svo var talað um að aðkoma ríkisstjórnarinnar bæri vott um ásýndarstjórnmál. Ásýndarstjórnmál, sagði hv. þm. Þorsteinn Víglundsson. Ég vil segja að ef sýnilegur og áþreifanlegur árangur af þátttöku í stjórnmálum, sýnilegur og áþreifanlegur árangur sem birtist í því að hér sjáum við raunverulegar aðgerðir til að bæta velsæld í samfélaginu, til að bæta lífskjör almennings, er ásýndarstjórnmál skal ég bara taka það á mig að vera ásýndarstjórnmálamaður þó að mér finnist það kúnstugt að heyra þessa gagnrýni frá hv. þingmanni sem getur ekki annað en fallist á það að hér er um að ræða mál sem munu skipta allan almenning máli, líka þá sem eiga eftir að semja, líka öryrkja og aldraða, því að við erum að tala um almennar aðgerðir á húsnæðismarkaði, almennar aðgerðir í skattamálum, almennar aðgerðir þegar kemur að verðtryggingunni og almennar aðgerðir þegar kemur að fæðingarorlofi. Það skiptir ekki máli hvort maður er á almennum eða opinberum vinnumarkaði, hver staða manns er, allar þessar aðgerðir snúast um að auka hér jöfnuð og tryggja aukna velsæld á traustum grunni. Þó að einhverjir hv. þingmenn hafi áhyggjur af stöðunni vil ég minna þá á að sömu hv. þingmenn höfðu líka áhyggjur af stöðunni við fjárlög síðasta árs sem ekki bara stóðust allar áætlanir heldur gott betur. Ég ætla að leyfa mér að vera áfram bjartsýn á það, í ljósi þeirrar stöðu sem við sjáum í íslensku efnahagslífi, þeirrar góðu stöðu ríkissjóðs sem við höfum, hins mikla aukna sparnaðar, (Forseti hringir.) betri lánskjara en nokkru sinni fyrr, góðrar áætlunargerðar, að við getum áfram verið bjartsýn. Ég held að lífskjarasamningar aðila vinnumarkaðarins séu einmitt stór áfangi í því að halda áfram á réttri braut. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)