149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

framkoma félagsmálaráðherra í umræðum.

[13:35]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég geri mér ferð hingað upp í lok þessa dagskrárliðar til að gera alvarlega athugasemd við það að á meðan hv. þm. Þorsteinn Víglundsson stóð í ræðustól gerði hæstv. félagsmálaráðherra sér ferð, ekki einu sinni heldur tvisvar, hingað inn í sal til að gala fram í, vissulega meira af vilja en mætti þegar inntakið er tekið með, gala fram í til að trufla hv. þingmann í ræðu sinni.

Ég tel mig knúna til að koma hingað upp og ég vona að þetta sé einsdæmi en ekki það sem koma skal, að ráðherrar komi ekki inn til að eiga orðastað við þingmenn í ræðupúlti samkvæmt þingsköpum heldur til að verða sjálfum sér og þingsalnum öllum til minnkunar.

Ég geri líka athugasemd við það, hæstv. forseti, að ekki skuli hafa verið gerð athugasemd úr þessum háa stóli við þessa framgöngu ráðherra.