sviðslistir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að ræða þessi mál hér. Ég vil nefna í fyrsta lagi að það er verið að einfalda lögin. Leiklistarlögin falla brott með tilkomu þessara heildarlaga.
Einnig nefndi hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir möguleika á samstarfi Íslandsstofu og þeirra kynningarmiðstöðva sem eru nú starfræktar. Mér er ljúft og skylt að upplýsa hv. þingmann um að nú hefur átt sér stað umfangsmikil stefnumótun sem miðar að því að sameina kynningarmiðstöðvarnar. Sú vinna hófst áður en ég tók við embætti sem mennta- og menningarmálaráðherra en við erum að fylgja henni eftir.
Þá erum við líka að auka samstarf. Ég sé fyrir mér gott og náið samstarf við Íslandsstofu og ég held að það megi efla þessa kynningu. Megintilgangurinn hjá okkur núna er til að mynda að koma hingað með þessi lög og efla þannig umgjörðina í kringum kynningu á íslenskri menningu, sem nýtur svo sannarlega mikillar virðingar á erlendri grundu.
Þannig að þetta frumvarp er einmitt liður í því að efla hinar skapandi greinar á Íslandi.