149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

Þjóðgarðastofnun og þjóðgarðar.

778. mál
[18:20]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsögu um frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða. Ég hef ákveðna fyrirvara við þetta mál eins og það liggur fyrir þótt ég sé algjörlega sammála því að við þurfum að bæta stjórnun og umsjón þjóðgarða og náttúruverndarsvæða. Mínir fyrirvarar snúa m.a. að því að eins og málum er stillt upp í frumvarpinu finnst mér dreifstýring og sjálfstæði hugsanlegra starfseininga ekki nægilega vel skýrð og ekki ljóst hvort þetta verður miðstýrð stofnun eða raunverulega valddreifð eins og ég teldi æskilegt. En samt sem áður er stillt upp í frumvarpinu ákaflega flóknu kerfi stjórna og umdæmisráða. Þess vegna vil ég velta upp þeirri spurningu hvort mögulegt sé að skoða þetta sérstaklega í þinglegu meðferðinni, hver sýn ráðherrans er á það.

Eins velti ég fyrir mér samspili frumvarpsins við náttúruverndarlög og hvort ástæða sé til að skoða það með það fyrir augum að ekki sé verið að endurtaka ákvæði náttúruverndarlaga í lögum um Þjóðgarðastofnun. Væri hugsanlega eðlilegra að þetta frumvarp fjallaði fyrst og fremst um stjórnun, rekstur og umsjón þjóðgarða og náttúruverndarsvæða en að ákvæði um verndun náttúru og menningarminja væri í öðrum lögum ásamt reglum og aðferðafræði við friðlýsingar og verndun?