149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

Þjóðgarðastofnun og þjóðgarðar.

778. mál
[18:26]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi þroskun samtalsins og samstarf um það sem við getum kannski kallað nytjar og not höfum við náttúrlega heilmikla reynslu frá þjóðgörðunum og af öllum hinum friðlýstu svæðum. Við getum farið allt aftur til ársins 1930 með Þingvallaþjóðgarð.

Af fyrirkomulagi eins og því sem við leggjum áherslu á í þessu frumvarpi höfum við í grundvallaratriðum yfir tíu ára reynslu úr Vatnajökulsþjóðgarði þar sem við erum með svæðisráðin, sem við getum kallað umdæmisráð í þessu frumvarpi og hafa gefist vel, meira að segja svo vel að þegar maður heyrir starfsmenn Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs bera saman bækur sínar, t.d. um gerð stjórnunar- og verndaráætlana, segja starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs að það geri starfið að stjórnunar- og verndaráætluninni mun betra að fá alla að borðinu strax í upphafi. Þess vegna held ég að við höfum allmikla reynslu og það sé þegar búið að eiga sér heilmikið samtal og samstarf á milli þessara helstu aðila sem hv. þingmaður nefnir. Auðvitað sinna fjöldamargir hópar mikilvægum verkefnum sem svona stofnun þarf, rétt eins og þær stofnanir sem til eru í dag, að halda áfram að tala við, sinna og vinna með. En ég held að það sé í sjálfu sér ekki eftir neinu að bíða að fara að horfa á þessi mál undir einum hatti í samstarfi ríkis og sveitarfélaga og það sé betra að nálgast alla þessa hópa frá einum stað en frá mörgum eins og þetta er í dag.