149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

Þjóðgarðastofnun og þjóðgarðar.

778. mál
[18:29]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra fyrir framsögu hans áðan. Það frumvarp sem við fjöllum hér um, stofnun Þjóðgarðastofnunar, er á margan hátt bæði athyglisvert og gott, en ég hef ýmsar athugasemdir við það. Í fyrsta lagi hef ég, eins og hæstv. ráðherranum er kunnugt um, ákveðnar efasemdir um að rétt sé að stofna eina þjóðgarðastofnun sem nái yfir alla þjóðgarða landsins. Ég er sjálfur á því að við eigum frekar að vera með rammalöggjöf um þjóðgarða og að fleiri en opinberir aðilar geti stofnað þjóðgarða og rekið þjóðgarða, að hvetja eigi einkaaðila til að reka þjóðgarða og einnig sveitarfélög og fleiri, enda fari þau eftir ákveðnum leikreglum í þeim efnum og uppfylli ákveðnar kröfur og undirgangist ákveðnar skyldur.

Ég hef líka alvarlegar athugasemdir við þá hugmynd að fella þjóðgarðinn á Þingvöllum þarna undir. Ef á annað borð á að stofna þessa Þjóðgarðastofnun, setja hana á laggirnar og að hún hafi yfirumsjón og stýri öllum þjóðgörðum á Íslandi, hygg ég að það sé rétt og skylt sögunnar og menningar okkar vegna og vegna tengsla þessarar samkomu við þjóðgarðinn á Þingvöllum að halda honum alfarið utan við stofnunina. Ég hygg og beini því til nefndarinnar að huga vel að því. Mér finnast þau rök sem færð eru fyrir því að færa þjóðgarðinn á Þingvöllum undir þessa stofnun ekki með þeim hætti að ég geti fellt mig við þau. Ég held að ég muni a.m.k. ekki styðja frumvarpið að því leyti.

Ég er hins vegar sammála þeim markmiðum sem sett eru varðandi stofnun þjóðgarða og kemur fram í 4. gr., þ.e. að vernda náttúruna og sögu þjóðgarða, gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru, auðvelda aðgengi, stuðla að rannsóknum, leitast við að efla samfélagið o.s.frv. Ég er nefnilega einn þeirra sem gert hafa sér grein fyrir því, og ég hygg að æ fleiri geri það, að náttúruvernd í sjálfu sér getur verið með arðbærari aðgerðum sem við getum ráðist í og er þar af leiðandi stórt efnahagslegt mál fyrir okkur Íslendinga. Við vitum auðvitað að náttúran hefur staðið undir töluverðum hluta af þeim hagvexti sem við höfum fengið að njóta í formi gríðarlegs fjölda ferðamanna.

Mér finnst merkilegt að líta til hins litla þjóðgarðs Snæfellsjökuls. Samkvæmt rannsókn sem gerð var í tengslum við meistararitgerð árið 2007 eru efnahagsleg áhrif þjóðgarðsins Snæfellsjökuls u.þ.b. 3,9 milljarðar. Þar af fást 955 milljónir úr beinni sölu og tekjuskatti og 900 milljónir koma inn úr beinum sköttum við eyðslu þeirra gesta sem koma inn í þjóðgarðinn. Það sýnir að það getur verið skynsamlegt efnahagslega og atvinnulega að byggja upp þjóðgarða. Þess vegna held ég að skynsamlegt væri að við færum í það eða skoðuðum það a.m.k. hvort ekki þyrfti að koma upp hér almennri rammalöggjöf um þjóðgarða og gefa fleirum en bara ríkinu eða opinberum aðilum kost á að koma þar að. Ég vil stuðla að því að sveitarfélög geri það. Ég vil líka að einkaaðilum standi til boða að uppfylltum ákveðnum skilyrðum að gera það.

Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu að sinni. Ég vildi koma þessum sjónarmiðum á framfæri hér við 1. umr. áður en frumvarpið gengur til nefndar. En ég beini því sérstaklega til nefndarinnar að skoða það að halda þjóðgarðinum á Þingvöllum fyrir utan þá stofnun, ef af henni verður.