149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

Þjóðgarðastofnun og þjóðgarðar.

778. mál
[18:34]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og fyrir að koma fram með þetta mál. Ég tel málið og markmið þess mjög mikilvæg og hlakka mikið til að takast á við bæði þessa umræðu og þetta verkefni í hv. umhverfis- og samgöngunefnd.

Ég tek undir með hv. þm. Óla Birni Kárasyni sem nefndi hérna áðan hvað þjóðgarðar, friðlýst svæði og náttúruvernd geti verið okkur mikilvæg. Ef vel tekst til erum við að búa til auðlind og þá getum við sagt að hér sé góð auðlindanýting, allri þjóðinni til heilla. Þess vegna skiptir þetta mál mjög miklu máli.

Ég er sammála öllum markmiðum málsins. Við þurfum að ná að samhæfa og koma skýru gangverki utan um okkar friðlýstu svæði, ekki síst til þess að við fáum sem flesta með okkur í þetta verkefni, náttúruverndarverkefnið, að vilja taka þátt í þessari uppbyggingu við að sinna svæðunum.

Þess vegna skiptir svo miklu máli að hér takist vel til við að búa til stjórnsýslu, þessa umgjörð, þannig að fólkið heima í héraði sem hefur búið í þessu landi, byggt það og verndað allt sitt líf, finni enn þá köllunina til að sinna svæðinu og starfa þar. Það þarf að vilja leggja eitthvað fram. Atvinnulífið þarf að sjá tækifæri til að byggja einhverja starfsemi í kringum þetta til þess að sýna fram á mikilvægi náttúruverndar, að þetta skapi einhver verðmæti fyrir okkur, þessi óspillta náttúra sem við höfum hér, hreina og fallega — hægt væri að hæla henni lengi.

Þá skiptir miklu máli að kerfið sé svolítið skýrt og ekki of mikið bákn. Það þarf að vera algjörlega skýrt og það mega ekki vera of margir flöskuhálsar. Fólk þarf að ganga bara að skýrum leikreglum. Það þurfa að vera leikreglur, en þær þurfa að vera skýrar og fólk þarf að vita fyrir fram hvernig það á að haga sér til þess að mega taka þátt og hvernig það gengur upp. Ef þetta gengur allt saman vel upp munu sveitarfélög biðja okkur um að setja meira land undir friðlýsingar innan þjóðgarðanna. Einkaaðilar munu biðja um að fá að vera með í þjóðgörðunum og vera með sitt landsvæði innan þeirra. Þá munu allir kappkosta við það.

Þess vegna skiptir útfærslan miklu máli. Þá þurfum við að horfa mikið til reynslunnar sem við höfum af Vatnajökulsþjóðgarði, Snæfellsjökuls- og Þingvallaþjóðgarði. Þar hafa verið mismunandi áskoranir og tekist misvel að mæta þeim og aðstæðurnar eru mjög misjafnar á hverjum stað fyrir sig.

Þess vegna vil ég hafa sagt það hér að ég er svolítið hræddur um að við gerum of einsleitt stjórnfyrirkomulag þannig að þetta verði ein stofnun með einum forstjóra og svo verði einhver svæðisráð með mjög mismunandi valdheimildir. Sumir hafi ákvörðunarvald, aðrir verði ráðgefandi, mögulega með mismunandi tengsl eða ráðningarsamband við forstjórann eftir því hvernig valddreifingin er — því að hún er öðruvísi í Vatnajökulsþjóðgarði en t.d. bæði Snæfellsjökuls- og Þingvallaþjóðgarði og svo gagnvart friðlýstu svæðunum.

Við þurfum að passa að þetta sé skýrt, líka til þess að fólkið heima í héraði fái það ekki á tilfinninguna að þetta sé einhver ríkisstofnun sem sjái bara um þetta þannig að ábyrgð fólksins sé farin og köllun þess, það sé bara: „Þau eru búin að taka yfir okkar verkefni.“

Mörgum finnst Þingvallanefnd, sem dæmi, hafa verið svolítið bákn, en hún er samt mjög skýr þar og þar eru mjög skýrar reglur, enda hefur tekist rosalega vel að byggja upp á Þingvöllum. Það hefur tekist vel að vernda Þingvelli. Þeir eru á heimsminjaskrá. Til Þingvalla kemur meira en ein og hálf milljón ferðamanna á hverju ári. Það er búið að leysa öll vandkvæði. Áður en við förum að gera einhverjar breytingar á þessu þurfum við að hugsa vel að þær raski ekki þeim stöðugleika sem er á Þingvöllum, alls ekki. Það má bara ekki gerast.

Þá vil ég líka segja um leið að við verðum að hafa í huga að eina raunverulega tenging Þingvalla við Alþingi — Þingvellir eru uppruni Alþingis, helgistaður þjóðarinnar — er Þingvallanefnd sem er kjörin af Alþingi. Við þurfum að hugsa það mjög vel ef við ætlum að fara að gera einhverjar breytingar og hvert þær leiði okkur, að við séum ekki að raska því að þetta er helgistaður þjóðarinnar og hversu vel hefur tekist til.

Tíu ára reynsla af Vatnajökulsþjóðgarði hefur þróað okkur mikið áfram. Hann er kominn, myndi ég segja, á miklu betra skrið núna. Þjóðgarðurinn nálgast það að vera sjálfbærari og uppbyggingin tekst betur. Stjórnfyrirkomulag hefur verið að slípast til og er að mörgu leyti alveg til fyrirmyndar. Við megum ekki raska þeirri vinnu. Við þurfum að fara mjög vel yfir þetta allt saman í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, hvernig þetta gerist og hvernig við getum nýtt krafta heimamanna, bæði í atvinnulífinu, landeigenda eins og bænda, og sveitarfélaganna, til að byggja upp þessa starfsemi þannig að við náum markmiðinu með þessu öllu saman. Það er kannski það sem þarf líka að nást.

Það sem ég vil nefna sem það mikilvægasta, eins og staðan er í dag, þar sem við erum með þrjá þjóðgarða, 111 friðlýst svæði, er að í staðinn fyrir að vera að byggja upp vissa þjónustu sem má kalla stoðþjónustu, sem allir þjóðgarðarnir þurfa að gera, þurfa ekki að nota í sínum daglega rekstri en þurfa á einhverjum tímapunkti að hafa aðgang að, ættum við að byrja á að á fókusera á að okkur takist að byggja upp fyrst þessa miðlægu stoðþjónustu sem hjálpar okkur að gera stjórnunar- og verndaráætlanir þannig að þær séu settar fram á sambærilegan hátt hjá öllum friðlýstu svæðunum og öllum þjóðgörðunum, þ.e. innleiðing atvinnustefnunnar sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir þá sem ætla að starfa með þjóðgörðunum, að þetta liggi allt saman skýrt fyrir í leikreglunum, hvernig við ætlum að skipta þeim fjármunum sem við höfum til landvörslu þannig að ekki verði eitt svæði út undan og að við náum að stýra því eftir álagi. Þetta er svona miðlægt og kannski er ekki hægt að byggja upp á hverjum stað en það er mikilvægt að við setjum fókusinn á hvernig við komum einhverju samræmdu fyrirkomulagi og utanumhaldi um þessi 111 friðlýstu svæði. Mér finnst það vera það sem okkur liggur allra mest á.

Svo er með stjórnsýsluna. Við þurfum einhvern veginn að tryggja á öllum þessum svæðum — því að Vatnajökulsþjóðgarður mun vera langstærstur og þegar og ef miðhálendisþjóðgarðinn kemur verður hann enn þá stærri — jafnvægi á milli þessara þriggja þjóðgarða og svo friðlýstu svæðanna innan stofnunarinnar.

Svo er annað sem ég vil koma inn á. Ég er búinn að tala mest um reksturinn, stjórnfyrirkomulagið og hvernig við tryggjum aðkomu allra. Þá er það sem sagt löggjöfin, eins og hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir var aðeins að velta fyrir sér líka áðan, hvort við séum að taka t.d. of mikið úr náttúruverndarlögunum og annarri löggjöf inn í þessa löggjöf og hvort við getum ekki nýtt okkur bara þá löggjöf sem við höfum núna, eins og náttúruverndarlöggjöf og varðandi menningarminjar og fleira slíkt. Þá er ég líka að hugsa um 9. gr. frumvarpsins um eignarnám og hvort þær heimildir sem við erum með í núgildandi náttúruverndarlögum dugi ekki bara og hverju þetta bæti nákvæmlega við. Þetta er bara eitthvað sem við þurfum að ræða í nefndinni og sjá hvernig æxlast.

Það þarf bara að vera ákveðinn skýrleiki þannig að leikreglurnar séu klárar og að við búum ekki til flöskuhálsa. Ef þetta tekst allt saman hjá okkur erum við að fara að búa til gríðarlega stóra og öfluga auðlind í okkar samfélagi. Við þurfum að nýta þá reynslu og passa okkur að vera ekki að raska því sem vel hefur verið gert heldur gera það enn betra. Mikilvægast er að ná utan um þessi 111 friðlýstu svæði.

Þess vegna fagna ég mjög kaflanum um umdæmisráðin og hvernig við ætlum að ná utan um þau og hvort við getum einhvern veginn styrkt þau og komið þeim sem fyrst af stað. Það er óþarfi að byggja miðlæga stoðþjónustu upp á fjórum stöðum, þremur þjóðgörðum og á friðlýstu svæðunum ef við teljum þau sem einn stað, heldur verður það að vera svolítið öflugt. Í framtíðinni gætum við þá, ef vel tekst til með þessa miðlægu stoðþjónustu, látið hana vinna fyrir alla landnýtingu. Þá er ég tala um skógrækt, landgræðslu og fleira til.

Hér höfum við fullt af spennandi umfjöllunarefnum sem ég hlakka til að takast á við, en ég vildi nefna þessar vangaveltur og kannski fyrirvara sem ég hef verið að koma inn á.