149. löggjafarþing — 94. fundur,  11. apr. 2019.

Þjóðgarðastofnun og þjóðgarðar.

778. mál
[18:59]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek áréttingu hv. þingmanns sem gefna og skil hann sem svo að hann vilji létta störfum af Þingvallanefnd en ekki losa sig eða aðra þingmenn við það sem fylgir því að bera ábyrgð á Þingvöllum fyrir hönd Alþingis.

Þegar ég fletti í gegnum þetta frumvarp sé ég að horfið hefur verið frá þeirri fyrirætlan að fella Þingvallaþjóðgarð inn í stofnun eins og hér er rætt um og þurrka út að mestu sérkenni stjórnskipulagsins og laganna sem um hann gilda, þurrka það að mestu út eins og upphaflega var fyrirhugað þegar þetta mál var fyrst fram sett. Ég hygg að það hafi verið kannski á árinu 2011 eða þar um bil. Það hefur verið horfið frá því.

Hér eru áréttuð mjög mikilvæg ákvæði úr lögunum um Þingvallaþjóðgarð og af því að hv. þingmaður nefndi sumarbústaði er skýrt tekið fram að þjóðgarðurinn á Þingvöllum er að öllu leyti undanþeginn lögum um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús. Þetta er mjög mikilvægt atriði. Það er mjög mikilvægt að setja sólarlagsákvæði um frístundabyggð í þjóðgarðinum á Þingvöllum og það er eitt af þeim verkefnum sem fyrir liggja. Ég held að því verkefni væri betur komið í einni stjórn, Þingvallanefnd, undir stjórn þingsins, en ekki (Forseti hringir.) í tveimur stjórnun og umdæmisráði og stofnun sérstakri að auki.