Þjóðgarðastofnun og þjóðgarðar.
Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða. Ég hef nokkrar athugasemdir og ætla að renna yfir þær helstu, en þar er alls ekki allt upp talið.
Í fyrsta lagi ætla ég að lýsa því yfir að það er fjöldamargt í þessu frumvarpi sem ég styð heils hugar. Ég styð markmið með stofnun þjóðgarða. Ég styð það að vernda náttúru þessara svæða. Ég styð það að vernda söguna. Ég styð það að vernda landslag, lífríki, jarðmyndanir og menningarminjar. Að sjálfsögðu geri ég það. Ég styð það að gefa eigi fólki kost á að kynnast og njóta náttúru, menningar og sögu þessara svæða. Ég styð það að við stuðlum að rannsóknum og fræðum fólk um þessi svæði, aukum skilning um svæðin og sérstöðu þeirra og ég styð auðvitað líka eflingu samfélaganna á þessum svæðum og að við styrkjum þannig byggð og atvinnu á þeim. Og fjöldamörg önnur prýðisgóð ákvæði er að finna í þessu frumvarpi sem eru til bóta. Auðvitað þarf að halda vel utan um síaukinn fjölda ferðamanna og vernda þessi svæði. Það er allt góðra gjalda vert.
Ég ætla að byrja á því að fara í nokkuð sem við skulum bara kalla áráttu, þ.e. að stofna nýjar stofnanir, að setja á fót nýjar stofnanir. Það er árátta sem búin er að vera lengi hér. Einhvern tímann sögðu Sjálfstæðismenn: Báknið burt! Þetta var hluti af þeirri baráttu. En báknið vex og vex, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekkert lát á því. Það eru sífellt að koma nýjar hugmyndir um nýjar stofnanir og þá sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Maður veit ekki fyrr en búið er að stofna nýja stofnun, maður getur ekki einu sinni talið þær upp því að það gerist svo ört og svo hratt að það hverfur úr huga manns. En ég man nú eftir Íslandsstofu, hún var samþykkt hér í fyrra. Það er risastór stofnun. Uppi eru áform um að stofna þjóðarsjóð. Þá þarf líklega stjórn yfir þá stofnun. Og síðast í gær var mælt fyrir frumvarpi um veitinga- og gististaði þar sem áform voru um að eftirlit með þessum gististöðum, heimagistingu, yrði í höndum eins sýslumanns. Það eftirlit hefur áður verið í höndum sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Ég geri þá ráð fyrir því að vegna þeirrar reynslu sem þar hefur safnast fyrir verði eftirlitið í hans höndum og tekið úr höndum hinna sýslumannanna sem eiga að hafa þetta eftirlit úti á landi. Þeir eru átta fyrir utan þennan. Það er sífellt verið að draga til höfuðborgarinnar og höfuðborgarsvæðisins verkefni og stofnanir og stofna nýjar stofnanir. Það væri fróðlegt, herra forseti, að gera einhvern tímann ítarlega samantekt á því hversu margar stofnanir, sjóðir, nefndir og ráð eru staðsett í höfuðborginni.
Auðvitað er þetta allt mjög nauðsynlegt, en ég nefni þetta af því að það má ekki nokkur einasta stofnun vera úti á landi, ekki ein einasta stofnun, án þess að krukka þurfi í hana og að fundið sé að henni og hún helst lögð niður. Það má bara alls ekki vera neitt úti á landi, þá eru komnar upp hugmyndir um að leggja það niður. Nýjast í þeim efnum eru sýslumannsembættin. Þau voru 27 fyrir tæpum tveimur áratugum. Það er búið að fækka þeim niður í níu. Gott og vel, látum það vera. En hverjar eru nýjustu hugmyndirnar? Að fækka þeim enn þá frekar og setja það allt á höfuðborgarsvæðið. Það eru nýjustu hugmyndir Sjálfstæðisflokksins og þeir eru búnir að leggja niður — ég ætla kannski ekki að orða það þannig að búið sé að leggja það niður, en sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, þ.e. persónan, er ekki lengur staðsettur þar, heldur voru verkefnin flutt upp á Selfoss og er skrifstofan í Vestmannaeyjum hálfgert útibú frá Selfossi í dag.
Það sem ég er að tala um og finna að er að það megi enginn hlutur vera úti á landi, þá koma upp hugmyndir jafnharðan um að leggja stofnunina niður, draga saman starfsemina og leggja hana svo niður, draga úr fjárútlátum þangað til stofnanir verða sjálfdauðar og verða sjálflagðar niður. Það er þetta sem ég er að finna að. Hér er enn ein stofnunin komin og þess vegna er ég að tala um það í því samhengi. Ég gæti talað lengi um þetta.
Síðan ætla ég að nefna örlítið valdheimildir stofnunarinnar, eyða í það stuttum tíma eins og ég hef stundum áður gert. Undir þessa Þjóðgarðastofnun á að færa ýmsar valdheimildir, eftirlitsheimildir, dagsektaheimildir upp á 500.000 kr., sem verða þá hæfar sem andlag fjárnáms, þ.e. heimild verður til að innheimta þær með aðför, eins og segir í 37. gr. Það þarf auðvitað að huga að valdi stofnunarinnar eins og það er skilgreint í 38. gr. Nefndin þarf að fara yfir hvers lags heimildir eiga að vera í höndum slíkrar stofnunar. Eftir að hafa lesið þetta einu sinni myndi ég segja að hálfgert lögregluvald væri þarna fært í hendur starfsmannanna, ég velti því upp hér. Ég er svo sem ekki búinn að mynda mér ígrundaða skoðun á þessu, en ég set spurningarmerki við þetta. Lögregluvald er í höndum lögreglu. Svo eru þarna sérstakar gjaldtökuheimildir sem ég vil líka vekja athygli á.
Síðan ætlaði ég að tala um það kerfi sem verið er að setja á stofn með Þjóðgarðastofnun. Ég vil segja nokkur orð um það. Mér finnst það vera flókið kerfi. Gert er ráð fyrir að stofnuð verði umdæmisráð, fleiri en eitt, þ.e. eitt umdæmisráð í hverjum landshluta eða einhverjum svæðishlutum landsins. Ég veit ekki hve mörg þessi ráð yrðu, en þau yrðu þá alla vega nokkur samkvæmt 12. gr. Það eru þjóðgarðarnir, sem eru orðnir þrír. Þeim á kannski eftir að fjölga. Yfir þeim er stjórn og hverjum þjóðgarði stýrir þjóðgarðsvörður sem hefur starfsmenn í þessum stjórnum, bæði umdæmaráðunum og í stjórn þjóðgarðanna, og flókið kerfi hagsmunaaðila kemur að þessum stjórnum. Síðan er annað sem heitir náttúruverndarsvæði. Þar eru líka einhverjar stjórnir. Yfir þessu trónir svo Þjóðgarðastofnun. En það er nú ekki svo einfalt vegna þess að yfir Þjóðgarðastofnun trónir auðvitað umhverfisráðherra. Mér finnst þetta vera flókið kerfi.
Einhvern tímann var sagt að Seðlabankinn hefði verið skúffa í ráðuneytinu. Mér dettur í hug: Er Þjóðgarðastofnun skúffa í umhverfisráðuneytinu í dag? Er það ekki? Ef við einföldum málið aðeins, er Þjóðgarðastofnun þá ekki í raun og veru skúffa í ráðuneyti hæstv. umhverfisráðherra? Jú, þannig er það auðvitað. Ráðherra er þannig með yfirstjórn yfir þjóðgörðunum eins og þessi stofnun á að vera. Í þeim skilningi er verið að færa skúffuna og búa til stofnun úr henni.
Næsta atriði sem ég ætlaði að nefna er Þingvellir. Hvort ég er sáttur eða ósáttur við að Þingvallaþjóðgarður verði settur undir Þjóðgarðastofnun ætla ég kannski ekki alveg að úttala mig um. Það er tvíbent. Gert er ráð fyrir því í lögunum að Þingvallanefnd verði áfram til. Hún verður aðeins einfölduð, fækkað verður í henni og hún verður hálfgerður umsagnaraðili varðandi þjóðgarðinn á Þingvöllum. Maður sér meira um hlutverk hennar í 21. gr.: Hlutverk Þingvallanefndar er að veita umsögn um málefni þjóðgarðsins, að veita umsögn um tillögu um ársáætlun, að vera stjórn þjóðgarðsins og Þjóðgarðastofnun til ráðgjafar, fjalla um önnur mál sem varða þingstaðinn og friðhelgi svæðisins.
Hún er hugsuð sem hálfgerð stimpilstofnun, sýnist mér. Þá spyr ég bara: Er einhver þörf á Þingvallanefnd ef þessi lög verða að veruleika? Er einhver þörf fyrir Þingvallanefnd?
Nú tek ég það frá hinni hliðinni, þ.e. varðandi Þingvelli. Þingvellir eru auðvitað nátengdir löggjafarsamkomunni. Í næstum 1100 ár hafa Þingvellir verið vettvangur löggjafar í þessu landi. Það eru 11 ár þangað til við fögnum 1100 ára afmæli Alþingis. Mikil tengsl hafa verið allt frá þessum tíma, allt frá 930, milli staðarins og löggjafarvaldsins í landinu, alla tíð í næstum 1100 ár. Tengslin eru söguleg og menningarleg, en ekki nóg með það, á Þingvöllum má finna jarðsöguna. Hún blasir við manni ljóslifandi. Þarna er aragrúi fornleifa. Mikill hluti þeirra er tengdur Alþingi og löggjafarsamkomunni. Mikill hluti fornleifaverndin er nátengdur. Mér er auðvitað sárt um það, þar sem ég sit í Þingvallanefnd, að þessi þjóðgarður sé tekinn undan nefndinni og nefndin gerð að einhvers konar umsagnaraðila eða stimpilstofnun fyrir þjóðgarðinn. Ég er ekki hræddur um að við missum tökin á svæðinu eða að það fari í einhverja óreiðu, ég er bara hræddur við þessi tengsl.
Ég vil líka benda á að þessi tengsl hafa verið góð. Starf nefndarinnar og tengsl nefndarinnar við Alþingi hafa gert þetta miklu auðveldara. Öll vinnan hefur verið miklu auðveldari, meira aðgengi, t.d. að fjármagni, miklu betra aðgengi, mjög auðveldar og stuttar boðleiðir til að framkvæma og gera hvaðeina sem mönnum dettur í hug á Þingvöllum. Það þarf ekki miklar bréfaskriftir til. Það gæti breyst ef þetta frumvarp nær fram að ganga.
Loks ætla ég rétt í lokin að koma inn á störf Þingvallanefndar. Ég sé engum ofsjónum yfir því, herra forseti, þótt Þingvallanefnd véli um það endrum og eins, kannski á tveggja mánaða fresti, að neyta forkaupsréttar á einhverjum bústöðum. Málið er unnið upp í hendurnar á okkur af lögfræðingum og við kynnum okkur einfaldlega málið, fáum álit lögfræðingsins og tökum ákvörðun. Það er ekki stórmál. Þetta er einn og hálfur tími á tveggja vikna fresti. Það er ekki mikil vinna þó að formaðurinn leggi vissulega meira af mörkum en við nefndarmennirnir hinir.