Þjóðgarðastofnun og þjóðgarðar.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmönnum fyrir góða umræðu um þetta mikilvæga mál. Ég held að það sé hægt að draga hana saman sem svo að hér séu allir sammála þeim markmiðum sem koma fram í frumvarpinu og um mikilvægi þess að styrkja stjórnun friðlýstra svæða á Íslandi, reyna að ná utan um fjölbreytileikann og einfalda frá því kerfi sem við erum með í dag þar sem við erum með þrjár stofnanir sem sinna þessum málum og reyna að koma þeim undir einn hatt þótt skiptar skoðanir séu kannski um nákvæmlega hvernig eigi að gera það. En allir eru sammála um að þarna megi taka til.
Hér hefur verið nefnt hvort verið sé að teikna upp flókið kerfi. Þá vil ég benda á að ef við viljum hafa lýðræðislega og aukna aðkomu mismunandi aðila, eins og sveitarstjórna, umhverfisverndarsamtaka og útivistarsamtaka, ferðamálasamtaka o.s.frv., kallar það á kerfi sem vissulega er flóknara en að hafa dæmigerða ríkisstofnun sem stýrt er með valdboði að ofan, það sem á ensku heitir, með leyfi forseta, „top down“. Það hefur verið aukinn vilji til þess hér heima og víða annars staðar að stýra stofnunum eins og þessum meira á valddreifðan hátt, þ.e. með því sem á ensku mætti kalla „bottom up“, með leyfi forseta.
Hér var spurt hvort einkaaðilar ættu að reka þjóðgarða og friðlýst svæði. Sumir eru þeirrar skoðunar að það gæti verið í einhverjum tilfellum skynsamlegt. Ég vil benda á að hér er náttúrlega um ákveðin almannagæði að ræða sem ég tel að fari betur á að sé stýrt af hinu opinbera. Hins vegar, þegar kemur að því að byggja margvíslega starfsemi í kringum þjóðgarðana, þjónustu og atvinnutækifæri sem hægt er að byggja á þeirri auðlind sem náttúran og þjóðgarðar og friðlýst svæði eru, skapast þar gríðarlega mikil tækifæri eins og rannsóknir Háskóla Íslands hafa sýnt.
Hvað varðar Þingvelli heyri ég að um þá eru vissulega skiptar skoðanir. Það verður verðugt verkefni nefndarinnar að skoða það mál. En þar vil ég þó segja að ég tel, líkt og ég ræddi í andsvari við hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur, að þar megi skoða ákveðna einföldun þar sem við erum með bæði Þingvallanefnd og stjórn eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Ég tel sjálfsagt að skoða það mál.
Einnig vil ég segja um Þingvelli að ég tek undir orð hv. þm. Álfheiðar Ingadóttur um sólarlagsákvæði um sumarbústaði sem ég held að væri verðugt fyrir nefndina að líta til.
Til að koma aðeins inn á það sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason nefndi áðan um að það væri árátta að stofna nýjar stofnanir vil ég benda hv. þingmanni á að í dag erum við með þrjár stofnanir sem sinna þessum málum en eftir þetta myndi ein stofnun sinna þessum málaflokki. Stofnunum mundi fækka úr þremur í tvær.
Þá nefndi hv. þingmaður líka að það væri tilhneiging að störf færðust til höfuðborgarinnar. Ég vil nefna í því samhengi að 85% starfa þessara þriggja stofnana sem lúta að náttúruvernd eru úti á landi. Ef við tökum Vatnajökulsþjóðgarð einan eru þrjú heilsársstörf á höfuðborgarsvæðinu og um 20 úti á landi. Sennilega eru ekki til þær stofnanir sem ekki eru allar úti á landi heldur eitthvað dreifðar sem eru með meiri og betri dreifingu þegar kemur að starfsmönnum en einmitt þær stofnanir sem sinna náttúruvernd eðli málsins samkvæmt, vegna þess að náttúran er á fleiri stöðum en í höfuðborginni.
Varðandi þær athugasemdir hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar að stofnanir sem heyri undir ráðherra séu skúffur í ráðuneytum þekki ég ekki sjálfur til þess að stofnanir ríkisins heyri undir einhverja aðra en ráðherra, a.m.k. eru þeir yfirleitt efstir í stjórnfyrirkomulaginu. En hv. þingmaður þyrfti að skýra það betur síðar ef ég á að skilja almennilega hvað hann átti við.
Ég vil að lokum árétta að með því fyrirkomulagi sem hér er kynnt til sögunnar er verið að auka aðkomu heimamanna að stjórnun og stýringu allra friðlýstra svæða á landinu. Hér er verið að vinna að því að styrkja starfsemina á þessum svæðum, bæði þeim sem fyrir eru og nýjum mögulegum svæðum.
Ég vil enda á því að leggja áherslu á að í náttúrunni okkar, sem er þessi stóra auðlind, hvort sem við horfum til sjávarútvegsins eða ferðaþjónustunnar, felast gríðarleg verðmæti fyrir þjóðarbúið, fyrir hinar dreifðu byggðir. Þetta er okkur sérstaklega mikilvægt. Þess vegna, og ekki síst út af því, er mikilvægt að utanumhald sé með skýra yfirsýn og stýrt, að mínu mati, af einni stofnun, en með virkri og góðri aðkomu heimamanna og annarra hagsmunaaðila í hvívetna.
Ég þakka þingmönnum kærlega fyrir umræðuna.