149. löggjafarþing — 95. fundur,  29. apr. 2019.

innleiðing þriðja orkupakkans.

[15:07]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Hæstv. forseti. Það er hæstv. forsætisráðherra sem situr hér fyrir svörum og ég ætla að reyna að freista þess að fá svar frá hæstv. ráðherra um afstöðu hennar til þessa máls. Það er ekki annað að heyra á hæstv. ráðherra en að hún trúi því einfaldlega að með hinum svokölluðu fyrirvörum hæstv. utanríkisráðherra sé málið leyst, til næstu ára a.m.k. En þá minni ég á að Stefán Már Stefánsson, sá sem hæstv. ráðherra nefndi áðan, hélt hinu sama fram um þá fyrirvara sem við töldum okkur hafa varðandi landbúnaðarmál, varðandi innflutning matvæla og lýsti því svo einfaldlega yfir að niðurstaða Evrópusambandsins í því máli væri röng. Ég er sammála honum um það. En við hljótum að óttast að Evrópusambandið muni í þessu máli einnig skila rangri niðurstöðu ef við opnum á yfirráð þeirra með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir. Ég minni á að m.a. er nú þegar verið að gera ráð fyrir því að færa Orkustofnun frá kjörnum fulltrúum á Íslandi og undir þessa samevrópsku stofnun (Gripið fram í: Nei.) óháð sæstreng. Það kemur skýrt fram. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Ég verð að fá að tala aðeins lengur því að þetta er viðkvæmt mál hjá að því er virðist Vinstri grænum ekki hvað síst. Þess vegna ítreka ég fyrri hvatningu til hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Er hann tilbúinn til þess að endurskoða þetta mál?