staða Landsréttar.
Herra forseti. Já, við vorum upplýst um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að áfrýja málinu og eftir því sem mér telst til er ekki enn þá búið að senda út öll gögnin. Málið tefst aftur og aftur og það er algerlega óboðlegt. Það er óboðlegt að forsætisráðherra komi hingað upp í ræðustól og segi: Kannski er þetta svona og kannski er þetta hinsegin.
Við erum tilbúin með plan A og plan B og plan C. Ekki láta taka okkur í bólinu enn og aftur í þessu gríðarlega mikilvæga máli, í því að halda vel utan um Landsrétt allan. Við erum tilbúin með plan ef dómstóllinn tekur málið fyrir. Ef þeir verða allir 15 settir af erum við tilbúin með plan. Líka það hvernig við ætlum að hafa það núna miðað við að þeir eru 11 starfandi.
Mér finnst þetta mál dæmigert fyrir ríkisstjórnina. Það er verið að bíða eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn leysi úr innanflokksátökum sínum um það hver á að vera dómsmálaráðherra á næstunni. Mér finnst vont að finna það að stjórnin hugsi frekar um það hver fer með forræði barnsins heldur en að gæta hagsmuna barnsins sjálfs. Barnið hér er Landsréttur. (Forseti hringir.) Við verðum að gæta hagsmuna Landsréttar því að það styrkir réttaröryggið og réttarvissu fyrir almenning í landinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)