staða Landsréttar.
Herra forseti. Ég get ekki tekið undir með hv. þingmanni að málin séu ekki undir styrkri stjórn hæstv. dómsmálaráðherra sem hér situr og er reiðubúinn til svara ef hv. þingmaður vill fara nánar út í það. Þau gögn sem vantar upp á verða send út í þessari viku, bara svo hv. þingmaður geti sofið rólega yfir því. Þetta er nefnilega ekki eins einfalt og hv. þingmaður vill vera láta. Hefði hæstv. dómsmálaráðherra, sem hefði viljað vera undirbúinn undir hvaða dóm sem er, jafnvel átt að vera búinn að ákveða að skipa 15 nýja dómara? Það er ekki svo.
Hv. þingmaður veit það ósköp vel, enda lögfræðimenntuð, að túlkun þessa dóms hefur verið deilum háð meðal okkar færustu sérfræðinga. Því er mikilvægt að vera reiðubúinn með viðbrögð eftir því hvort efri deildin (Gripið fram í.) kemur … Mér heyrist hv. þingmaður vera mjög æst yfir þessu máli og ekki einu sinni vilja hlusta á svörin. Það er mjög mikilvægt að við séum (ÞKG: Þetta er stórmál.) tilbúin með svörin. En hins vegar hlýtur hv. þingmaður að átta sig á því að kjósi efri deildin að taka málið til umfjöllunar þá mun það taka tíma. Það mun geta tekið allt að tveimur (Forseti hringir.) árum og þá verður óvissunni ekki eytt endanlega fyrir hv. þingmann fyrr en að þeim tíma liðnum.