149. löggjafarþing — 95. fundur,  29. apr. 2019.

aðgengi að ferðamannastöðum.

[15:25]
Horfa

Einar Kárason (Sf):

Herra forseti. Eins og menn vita eru dæmi þess á liðnum árum að landeigendur hafi lokað af eða afgirt vinsæla ferðamannastaði og tekið upp þann hátt að selja fólki aðgang að þessum stöðum. Þetta hefur ekki verið gert víða, enn sem komið er, og landaeigendur hafa svo sem komið með ágætlega geðug rök fyrir þessu, þeir segja að þeir þurfi að nota peningana til að vernda svæðin, leggja stíga o.s.frv.

Hins vegar óttast maður að ef þetta fer að breiðast út um landið muni það þýða allt annars konar upplifun okkar Íslendinga á þessu landi, auk þess sem þetta er talið vera í andstöðu við bæði hefðir um frjálsa för fólks um landið og jafnvel forna lagabálka, allt aftur til Jónsbókar eða jafnvel Grágásar.

Þess vegna langar mig til að vita og heyra frá hæstv. ráðherra hver sé stefna ríkisstjórnarinnar og hennar í þessu efni, hvort það eigi að setja reglur um hvernig þessu verði háttað í framtíðinni.