149. löggjafarþing — 95. fundur,  29. apr. 2019.

aðgengi að ferðamannastöðum.

[15:29]
Horfa

Einar Kárason (Sf):

Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Eins og ég segi eru ákvæði í fornum lögbókum sem gera fólki kleift að ferðast um óbyggð svæði. Við erum að sjálfsögðu ekki að tala um ræktarlönd eða heimatún eða eitthvað slíkt. Ég held að úr því að talið er að það sé vafamál hvernig eigi að túlka þetta og hvernig eigi að hátta þessu í framtíðinni hljóti að vera mjög mikilvægt að Alþingi og ríkisstjórn taki forystu um að eyða þeirri óvissu. Það þarf ekki að taka það fram að það er stefna okkar jafnaðarmanna að allir Íslendingar eigi þetta land jafnt.