149. löggjafarþing — 95. fundur,  29. apr. 2019.

aðgengi að ferðamannastöðum.

[15:30]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég er sammála hv. þingmanni hvað það varðar að við munum þurfa að komast lengra áfram með hvernig almannarétturinn eigi að þróast í takt við breytta tíma þegar við erum með innviði sem gera fólki kleift að komast á milli staða, en líka varðandi þá staðreynd að hér kemur fjöldinn allur af gestum og við þurfum einhvern veginn að hafa stjórn á því þegar þeir ákveða að fara á einhverja staði, að bregðast við því.

Við erum annars vegar með opinber lönd, lönd í eigu hins opinbera eða sveitarfélaga, friðlýst svæði, og hins vegar lönd sem einstaklingar eiga. En þetta kemur helst til álita þegar um er að ræða svæði sem eru í eigu einstaklinga þar sem landeigendur víða um land bera ábyrgð á sínu landi. Þegar áhugi ferðamanna vaknar á því að koma og skoða er að mínu viti mjög mikilvægt fyrir þá einstaklinga að geta brugðist við. Það er ekki endilega skynsamlegt fyrir okkur öll að eina leiðin sé að loka þegar ágangurinn er orðinn mikill. Þá finnst mér frekar koma til greina að eigendurnir hafi (Forseti hringir.) lagalega heimild, sem ég tel að þeir hafi, til að taka gjald fyrir komu á land þeirra, sérstaklega ef standa á undir ákveðinni þjónustu fyrir ferðamenn. Væntanlega viljum við ekki að allir bændur loki löndum sínum vegna þess fjölda ferðamanna sem vill koma þangað.