149. löggjafarþing — 95. fundur,  29. apr. 2019.

ferðakostnaður sjúkratryggðra og aðgengi fólks utan höfuðborgarsvæðisins að sérfræðiþjónustu.

641. mál
[16:02]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég vil enn þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Ég held að það sé afar mikilvægt sem hefur komið fram hjá bæði hjá hv. fyrirspyrjanda og þeim sem hafa tekið þátt í umræðunni, að lausnin er fjölþætt. Hún er ekki einföld. Við þurfum bæði að bæta þjónustuna úti um land en líka að bæta aðgengið í gegnum fjarheilbrigðisþjónustu og bætta sjúkraflutninga. Þetta er því samsett lausn.

Ég vona að hv. þingmaður hafi tekið eftir því að ég gerði sérstaklega grein fyrir því að það væri hluti af samningsmarkmiðum til sjálfstætt starfandi sérfræðinga að þeir gætu og bæri til þess skylda að veita þjónustu sína, líka úti um land en ekki bara á höfuðborgarsvæðinu. Það þarf því ekki bara að snúast um opinbera kerfið heldur um allt heilbrigðiskerfi okkar, hvernig sem það er samansett. Það er engin launung að ég hef lýst því yfir að það styrkja þurfi opinbera heilbrigðiskerfið og ekki síst í því að efla heilsugæsluna til muna úti um allt land. Meðan við erum komin með til að mynda sálfræðinga í heilsugæslunni, þar sem við verðum í raun og veru búin að uppfylla þau viðmið um næstu áramót að koma á geðheilsuteymum úti um allt land, erum við í raun og veru komin í algjörlega nýjan kafla í aðgengi að fyrsta og annars stigs þjónustu hvað varðar geðheilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Það er algjör grundvallarbreyting á okkar kerfi. Auðvitað kemur til þess ef fólk þarf að leggjast inn eða þarf að njóta þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri eða Landspítala vegna slíkra veikinda eða annarra að það þarf þá oft að fara um langan veg. Sjúkrahótelið hjálpar að hluta til við þjónustu við fæðandi konur, af því að hér kom sú spurning upp. Greiðsluþátttökukerfið er auðvitað líka virkt og hefur sýnt sig að virkar mjög vel. En það þarf sannarlega að halda utan um alla þá þætti.

Ég vil enn þakka fyrir góða umræðu um þetta mál.