149. löggjafarþing — 95. fundur,  29. apr. 2019.

sifjadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

718. mál
[16:29]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég vil nefna það í þessu samhengi að ástæðan fyrir því að ég nefni sérstaklega rafrænar þinglýsingar er einmitt að sum verkefni sýslumanna eru þannig að hægt er að leysa þau með rafrænum hætti, gera þau miklu skilvirkari og þar með kostnaðarminni auk þess að það bætir þjónustu við borgara sem hana þurfa að nýta.

Svo er önnur mál sem ekki er hægt að leysa með þessum hætti, líkt og viðkvæmari mál og fjölskyldumál sem hv. þingmaður nefnir. Þess vegna standa vonir til þess að með rafrænum þinglýsingum og öðrum slíkum verkefnum, sem eru mörg, bæði hjá sýslumönnum annars staðar — það kostar auðvitað sitt í upphafi en skapar síðan tækifæri til að breyta starfsemi embættanna. Það er alveg rétt, það er hagræðingarkrafa þarna eins og alls staðar annars staðar. Þess vegna bundu menn vonir við að það myndi skila betri árangri að taka hallann burt árið 2016 en raun bar vitni.

Staða sýslumannsembættanna er ekki nægilega góð og þess vegna erum við að þessu. Dómsmálaráðuneytið hefur undanfarið unnið með fjármála- og efnahagsráðuneytinu og sýslumannaráði að heildstæðri greiningu á rekstri allra sýslumannsembætta landsins. Það er algjör grundvöllur fyrir þeim ákvörðunum sem teknar verða í framhaldinu. Vonir standa til þess að það muni ásamt öðrum aðgerðum ráðuneytisins bæta stöðu sýslumannsembætta til lengri tíma litið. Þessar aðgerðir helgast fyrst og fremst af slæmri rekstrarstöðu sýslumannsembættanna og eru til þess fallnar að bæta úr þeirri stöðu.

Varðandi það hvort áform séu um að tryggt verði meira fé til embættisins er dómsmálaráðuneytið, eins og fyrr greinir, að vinna að ýmsum aðgerðum sem miða allar við að styrkja rekstur sýslumannsembætta landsins. Þessi greining á rekstrarumhverfi embættanna er grundvallarforsenda ákvarðanatöku um auknar fjárheimildir einstakra embætta, þar á meðal sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

Þar sem beðið er niðurstöðu um greiningu, skipulags, verklags og reksturs sýslumannsembættanna sem og áhrifa innleiðingar rafrænna þinglýsinga, eru ekki forsendur til að flytja meira fé til embættisins á höfuðborgarsvæðinu að svo stöddu.