frysting fjármuna og skráning aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Gott að hann er sömu skoðunar, að það sé mikilvægt að nefndin fari yfir þetta og reyni kannski aðeins að einfalda þessa framsetningu.
Mig langar aðeins að spyrja hæstv. ráðherra varðandi 8. gr., en þar segir að rannsókn geti hafist án þess að grunur liggi fyrir um refsivert athæfi. Það má því í raun og veru segja að hér sé verið að lækka, ef svo má að orði komast, viðmiðið til að lögregla geti hafið rannsókn.
Það er alltaf áhyggjuefni ef verið er að lækka viðmið vegna rannsókna og veita undanþágur frá lögum um meðferð sakamála, við þekkjum það vel.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvaða reglum eigi í raun að fylgja í þessu sambandi.