149. löggjafarþing — 96. fundur,  29. apr. 2019.

frysting fjármuna og skráning aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna.

774. mál
[17:29]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Í 8. gr. frumvarpsins er lagt til að hafin sé rannsókn, eins og hv. þingmaður vísaði til, samkvæmt ákvæðum laga um meðferð sakamála á aðila „ef til staðar er réttmætur grundvöllur eða réttmætar ástæður til að ætla að hann uppfylli skilyrði fyrir skráningu á lista yfir þvingunaraðgerðir.“

Markmið rannsóknarinnar er að afla allra nauðsynlegra gagna, m.a. til að leggja mat á hvort tilefni sé til að tilnefna viðkomandi á lista yfir þvingunaraðgerðir í samræmi við III. kafla laganna, þ.e. leggja mat á hvort viðkomandi tengist hryðjuverkasamtökum eða starfsemi með þeim hætti að nauðsynlegt sé að frysta efnahagslegan auð viðkomandi.

Ekki er gengið svo langt að kveða á um að hér séu á ferðinni forvirkar rannsóknarheimildir í frumvarpinu, en mikilvægt er að viðkomandi viti ekki af þeim möguleika að hann gæti endað á lista yfir þvingunaraðgerðir til að honum gefist ekki ráðrúm til að bregðast við og koma eignum eða öðru undan áður en hann er skráður.

„Greininni er ætlað að koma til móts við tilmæli 6.3 í skýrslu FATF frá apríl 2018. Þar kom fram að til staðar þurfi að vera heimild til að afla upplýsinga um aðila sem réttmætar ástæður eru til að ætla að uppfylli skilyrði skráningar á lista yfir þvingunaraðgerðir og að slík rannsókn geti farið fram án þess að þeim aðila sem hún beinist gegn sé tilkynnt um það.“

Þarna, virðulegi forseti, er aftur um að ræða, svona í stuttu máli, að það er verið að koma til móts við tilmæli í þessari títtnefndu skýrslu. Þannig má í rauninni segja að frumvarpið sé — það er svona stutta lýsingin á frumvarpinu, og t.d. því sem hv. þingmaður vísaði hér til áðan og las upp, löngu setningunni. Hún er t.d. bara orðrétt þýðing á tilmælum sem þar eru.

Ég þarf ekkert að rekja það, ég fór yfir það í framsöguræðu minni, hver tilurðin er, af hverju við erum að taka þátt í þessu samstarfi og hvaða afleiðingar það gæti haft ef við gerðum það ekki.