149. löggjafarþing — 96. fundur,  29. apr. 2019.

frysting fjármuna og skráning aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna.

774. mál
[17:34]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé erfitt að þræta fyrir það að umrætt frumvarp er, eins og hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir vísar til, pínulítið torf. Það er auðvitað hætt við því að frumvarp sem þetta sem byggt er á tilmælum í alþjóðlegri skýrslu sé kannski, eins og hér hefur verið nefnt, ekki neinn skemmtilestur eðli máls samkvæmt. Það er svo sem ekkert skemmtilegt í þessu enda grafalvarlegt mál.

Það sem ég vildi segja er að í hugum flestra þegar við hugsum um gereyðingarvopn þá sjáum við fyrir okkur t.d. kjarnorkusprengjur eða eitthvað slíkt. En það er bara miklu meira á lista yfir gereyðingarvopn en það. Svo við tökum eitt nýlegt dæmi þá er það gas sem var notað í Salisbury í Bretlandi, þegar reynt var að drepa Skripal-feðginin, á lista yfir gereyðingarvopn. Án þess að ég sé neinn sérfræðingur í þeim lista þá veit ég að það er miklu fleira á honum en það fyrsta sem kemur í hugann. Ef þetta varpar frekari ljósi á hvað hér er um að ræða þá vona ég að svo sé. Ég held að hv. þingmaður hafi verið að vísa til þess að það fyrsta sem kemur í hug manns þegar gereyðingarvopn eru nefnd eru mjög stór vopn. En það er líka annað eins og í þessu tilfelli, þetta gas sem var notað til að reyna að lífláta feðginin er á lista yfir gereyðingarvopn.