störf þingsins.
Forseti. Mig langar, eins og ég hef af og til gert hér áður þann tíma sem ég hef setið á hinu háa Alþingi, að ræða um orkustefnu, nauðsyn þess að setja hana og hvernig mér finnst að hún eigi að vera skrúfuð saman.
Það vill svo til að hæstv. ríkisstjórn er einmitt með starfshóp í gangi sem vinnur að orkustefnu. Þar eru ýmsar góðar hugmyndir í gangi og ég bind miklar vonir við þá vinnu. Í mínum huga eigum við nefnilega að nýta orku landsins, sem umtalsvert er af, fyrst og fremst til að byggja hér upp kolefnishlutlaust samfélag. Um það á orkustefnan fyrst og síðast að snúast.
Eitt af því fáa góða, vil ég leyfa mér að segja, forseti, við umræðu síðustu vikna og mánaða um orkumál er að nú virðast allir hafa mikinn áhuga á orkustefnu og hvernig við eigum að haga okkar orkumálum. Mér finnst það jákvætt. Við eigum að nýta það til að setja okkur orkustefnu með kolefnismarkmið í huga. Því að í grunninn á orkustefnan að snúast um að byggja upp grænt samfélag. Við eigum að nýta orkuna okkar til að ná loftslagsmarkmiðum og til að stuðla að grænni framleiðslu. Við eigum ekki bara að horfa á krónur og aura.
Uppbygging grænnar atvinnustarfsemi á að vera í forgangi og við eigum jafnvel að nýta okkur opinbert eignarhald til þeirra ívilnana sem við getum komið á. Er t.d. samfélagslegur ávinningur meiri af niðurgreiðslu á flutningi rafmagns til grænmetisframleiðslu en orkusölu til að grafa eftir rafmynt þó að hærra verð fengist fyrir það síðarnefnda? Í gegnum opinbert eignarhald eigum við að nýta orkukerfið til orkuskipta og tryggja aðgang að rafmagni um allt land. Öll orkuframleiðsla þarf að lúta ströngum umhverfiskröfum og lækka þarf viðmiðunarmörk smávirkjana. Orkuna okkar eigum við að nýta til að ná markmiðum í loftslagsmálum, ekki til að flytja út rafmagn í gegnum sæstreng.
Við eigum að nýta orku landsins til að gera Ísland kolefnishlutlaust, um það á orkustefnan að snúast.