störf þingsins.
Herra forseti. Ég ætla að ræða málefni til úrlausnar sem eru hjá ríkisstjórn og þinginu og snúast um orkumál. Boðað hefur verið breytt eignarhald á Landsneti, þ.e. beina ríkiseign. Ég vil gjarnan hvetja til þess að við sjáum það frumvarp sem allra fyrst. Það hefur líka verið boðuð eigendastefna fyrir Landsvirkjun. Ég vil gjarnan fá að vita hvar sú vinna er stödd og hvort hægt sé að flýta þeirri vinnu.
Það er boðuð heildræn orkustefna, eins og hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé minntist hér á, og breytt eigendastefna fyrir Landsvirkjun hangir saman við þá orkustefnu. Ég veit að vel gengur, en ég vil gjarnan að nefndin, sú sem vinnur að þessu, gefi þinginu upplýsingar um hvar vinnan er stödd nú. Það er boðuð endurskoðun á stjórnarskrá, þ.e. ýmsum ákvæðum hennar. Þar hefur verið rætt um auðlindaákvæði. Ég vil hvetja til þess að samstaða um það náist sem allra fyrst í þessu ferli.
Þarna er ég að ræða um nokkur mál sem skipta miklu þegar kemur að þessum helstu þáttum orkustefnu á Íslandi sem þurfa að ná saman þannig að úr verði ákveðin heildræn stefna.
Ég ætla að minnast í lokin á boðaða eigendastefnu fyrir Isavia. Það er líka óljóst hvar sú vinna er stödd og hvort hægt sé að flýta gerð þeirrar eigendastefnu. Þetta varðar miklu um uppbyggingu á Suðurnesjum, atvinnumál, boðaða flugstefnu og flugvallaþróun utan Keflavíkur eins og boðuð er í samgönguáætlun. Í öllum þessum málum er mikilvægt að vinnu sé hraðað og við fáum upplýsingar um hvar þessi mál eru stödd í kerfinu.