149. löggjafarþing — 97. fundur,  30. apr. 2019.

störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Eins og þingheimur veit höfum við orðið fyrir nokkrum áföllum í íslensku þjóðarbúi. Loðnan hefur ekki gefið sig og við höfum þurft að horfa upp á gjaldþrot mikilvægs fyrirtækis í ferðaþjónustu, WOW-flugfélagsins, en vegna þess hve sterk staða þjóðarbúsins er erum við í stakk búin til að takast á við þau áföll. Í fyrsta skipti, a.m.k. í nútímasögu Íslands, eru eignir okkar Íslendinga erlendis meiri en skuldir okkar. Staða ríkissjóðs er með þeim hætti að hann getur tekið þátt í að byggja upp lífskjarasamninga í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og launþegasamtökin. Kjarasamningar sem gerðir hafa verið, lífskjarasamningarnir, leggja líka grunn að því sem launafólk hefur sóst eftir og það er að vextir og þar með fjármagnskostnaður og aukinn kaupmáttur ráðstöfunartekna verði lagður með lækkun vaxta. Það er einmitt það sem seðlabankastjóri, Már Guðmundsson, boðar í Morgunblaðsgrein í dag. Ég hæli ekki oft Seðlabankanum sérstaklega þó að hann eigi allt gott skilið en það er alveg ljóst að verðbólguvæntingar í kjölfar þeirra góðu kjarasamninga sem hafa náðst eru með þeim hætti að við getum átt von á því og reiknað með því að á næstunni, innan tiltölulega skamms tíma, muni vaxtastig á Íslandi þokast enn neðar, en nú eru vextir í sögulegu lágmarki. Þetta skiptir launþega miklu máli og þetta skiptir fyrirtækin í landinu gríðarlega miklu máli vegna þess að það eykur bolmagn þeirra og möguleika til (Forseti hringir.) að standa undir hærri launum.

Í tilefni af þessu, herra forseti, óska ég íslensku launafólki innilega til hamingju með 1. maí sem er á morgun. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)