störf þingsins.
Herra forseti. Ég ætlaði í fáeinum orðum að gera það sem er ekki mikið tíðkað undir þessum dagskrárlið, ég ætla að tala um störf þingsins. Þar sem ég hef verið að fylgjast með stjórnmálum og þingstörfum frá því ég var á unglingsaldri veit ég að hér hafa orðið töluverðar og miklar framfarir í því að fá menn til að vera sæmilega gagnorða með því t.d. að úthluta ræðutímanum eins og hér er gert.
Ég hef líka tekið eftir því, sem mér hefur fundist dálítið merkilegt, að hvort menn komi í pontu ræðst kannski frekar af því hvort þeir hafi fengið úthlutað ræðutíma en því hvort þeir hafa eitthvað að segja. Að sama skapi hef ég líka tekið dálítið eftir því að menn fylla jafnan út í þann tíma sem þeir hafa til að tala. Það er alveg sama hvort ræðutíminn er tvær mínútur, fimm mínútur, korter eða hálftími að þá hætta menn ekki fyrr en ljósin blikka og maður hugsar stundum með sér: Hann kláraði á fimm mínútum að segja það sem hann ætlaði að segja og hefur síðan verið í frígír til að missa ekki af tímanum sem hann hefur fengið úthlutað.
Ég ætla ekki að tala um málþóf þó að ég hafi á þeim þrem mánuðum sem ég hef verið hér upplifað fleira en eitt. Ég veit að það er nokkur réttur minni hlutans, neyðarréttur stundum, að stunda málþóf. Hins vegar held ég að menn ættu að fara aðeins sparlegar með það en mér hefur virst vera. Ég furða mig stundum á því hvort það er of mikil hégómagirnd eða kannski skortur á því sama eða sjálfsvirðingu þegar fullorðið fólk stendur á eintali við sjálft sig um ekki neitt kannski tvo sólarhringa í þessum virðulega og sögulega og merkilega sal.
Á endanum ætla ég að vitna í frægt nútímaljóð eftir Sigfús Daðason. Hann segir:
Hvað sem öðru líður vil ég biðja menn
að fara varlega með orð
þau geta sprungið
og þó er hitt öllu hættulegra
að það getur vöknað í púðrinu.
Takk fyrir mig.