utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæta ræðu. Ég ætla nú að fara yfir skýrsluna hér á eftir í ræðu minni og þar á meðal inngang ráðherra að skýrslunni. Mikilvægi EES-samningsins kom fram í ræðu ráðherra og ekki ætla ég að gera lítið úr því að sá samningur er okkur mjög mikilvægur. Ég er talsmaður þess að við eigum að vera óhrædd við að ræða kosti og galla þessa samnings, að velta við hverjum steini og velta fyrir okkur hvort samningurinn er hagstæður eða ekki. Ég er ekki talsmaður þess að segja okkur frá þessum samningi, ég held að við eigum að þora að ræða kostina og gallana.
Hæstv. ráðherra lýsti því ágætlega hversu gott er að við erum undanþegin með okkar sjávarútvegsstefnu þegar kemur að Evrópusamstarfinu, sem er gríðarlega mikilvægt. Mig langar að spyrja hann hvort það hefði ekki verið heppilegt að við hefðum haldið jafngóðri undanþágu varðandi landbúnaðinn. Ráðherra minntist á að landbúnaður væri Íslendingum mikilvægur, en á sama tíma stöndum við frammi fyrir því, vegna þess að við erum aðilar að EES-samningnum, að við höfum verið dæmd til að opna Ísland fyrir innflutningi á ófrosnu kjöti. Ég spyr ráðherra hvort hann sé ánægður með þá þróun, hvort hann telji að betra hefði verið að við hefðum haldið landbúnaðinum algerlega fyrir utan þennan EES-samning og allt sem að landbúnaðinum kemur, heilbrigðiskröfum og öðru slíku, og þannig sloppið við að opna okkar viðkvæma land fyrir innflutningi á ófrosnu kjöti frá Evrópusambandslöndum, sem við vitum í raun ekkert hvaðan kemur. Það hefur sýnt sig undanfarið að kjöt sem hefur verið stimplað í bak og fyrir hinum megin við álinn er sýkt, og jafnvel í bak og fyrir. Ég spyr ráðherrann hvort það sé ekki einmitt dæmi um að við þurfum að fara mjög varlega þó að þetta samstarf sé mikilvægt, og margt gott í því, þegar við innleiðum eða tökum á okkur einhverjar skuldbindingar þarna.