utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir greinargóða skýrslu, hún er ágætlega unnin, og ég þakka einnig starfsfólki utanríkisráðuneytisins fyrir þeirra framlag við þessa vinnu sem er mikilvæg. Það er margt fróðlegt í þessari skýrslu. Sumt mætti skýra aðeins betur út. Ég kem nánar að því á eftir.
Ég vil í upphafi taka undir það sem hér hefur verið sagt um mikilvægi þess að hér sé stunduð góð og málefnaleg umræða um utanríkismál. Við eigum, eins og komið hefur fram og kom fram í máli hæstv. ráðherra, mikið undir alþjóðasamstarfi og alþjóðasamskiptum. Mín skoðun er sú að mér finnst Alþingi ekki hafa tekið, ef svo má að orði komast, þennan málaflokk nægilega alvarlega í störfum sínum, t.d. hvað varnarmálin varðar. Þau skipta okkur að sjálfsögðu mjög miklu máli og við höfum upplifað miklar breytingar í þeim málaflokki á örfáum árum. Aukin viðvera Rússa í Norður-Atlantshafi og áherslan í Austur-Evrópu hefur sýnt okkur að þessi málaflokkur er mjög mikilvægur. Á sama tíma, svo dæmi sé tekið, þá er Íslandsdeild NATO einungis skipuð þremur þingmönnum, þar af einum þingmanni stjórnarandstöðunnar, þar sem eru jú fimm flokkar. Þetta finnst mér að þyrfti að laga. Við þyrftum að fjölga fulltrúum, t.d. í Íslandsdeild NATO, til þess einfaldlega að þingheimur sé betur upplýstur um gang mála í þessum mikilvæga málaflokki.
Herra forseti. Það er af mörgu að taka í þessari skýrslu og ég vil sérstaklega þakka fyrir þá myndrænu framsetningu sem er að finna í skýrslunni á bls. 12 og 13 og víðar. Hún er upplýsandi og góð. Ég ætla að víkja fyrst að því sem rætt er um á bls. 7, um hagsmunagæslu á vettvangi Evrópusambandsins. Þar tekur hæstv. ráðherra til máls, ef svo má að orði komast: „Ég er þess fullviss að ef við höldum rétt á spilunum þegar kemur að hagsmunagæslu á vettvangi EES tryggjum við að svo verði áfram.“
Ég vil staldra svolítið við þetta „ef“ og spyrja hvort við höldum vel á spilunum. Ég nefni sem dæmi landbúnaðarmálin. Ég tel að við höfum haldið illa á spilunum hvað landbúnaðarmálin varðar. Við tökum upp í íslenskan rétt matvælatilskipun Evrópusambandsins 2009. Ég held að engan hafi órað fyrir því að tíu árum síðar þyrftum við að heimila innflutning á hráu kjöti til landsins sem mun verða á haustmánuðum. Hér hefði mátt halda mun betur á spilunum. Það er gríðarlega mikið í húfi fyrir íslenskan landbúnað hvað þetta varðar og okkar hreina landbúnaði stendur ógn af innflutningi á hráu kjöti. Þetta hafa færustu sérfræðingar sagt og bent á. Því miður hafa þessar varnir okkar ekki haldið, ef svo má að orði komast, og við höfum verið dæmd til þess að flytja inn hrátt kjöt.
Síðan er náttúrlega annað stórt og mikið mál sem er orkupakki þrjú sem er til umræðu og hefur valdið mikilli umræðu í samfélaginu og við verðum að spyrja okkur líka að því: Höfum við haldið vel á spilunum í þeim efnum? Ég tel svo ekki vera. Ég tel að þessi svokallaða séríslenska leið sem boðuð hefur verið, með því að setja í lög að hér verði ekki lagður sæstrengur nema með heimild Alþingis, komi ekki til með að halda þegar fram líða stundir. Hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af þessu. Það muni ekkert gerast eftir að þetta mál verður samþykkt, ef það verður þá samþykkt. Það er nákvæmlega það sama og gerðist í svokallaða hráakjötsmáli. Það gerðist ekkert eftir að við samþykktum matvælalöggjöfina en tíu árum síðar þurfum við að flytja inn hrátt kjöt. Þá spyr ég: Hvað mun gerast tíu árum eftir að við höfum samþykkt orkupakkann, ef hann verður samþykktur? Með orkupakkanum erum við einfaldlega að undirbúa jarðveginn fyrir það sem koma skal, eitt markaðssvæði raforku í Evrópu. Gleymum því ekki að raforkuverð á Íslandi er það lægsta í Evrópu. Kílóvattstundin hér er 18 kr. á meðan hún er um 43 kr. í Danmörku. Ég leyfi mér að segja að ég efast um að við höfum haldið vel á spilunum í þessum efnum.
Hér segir auk þess í skýrslunni: „Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa hugfast að þessi mikli ávinningur hefur fengist án þess að Ísland hafi þurft að fórna sínum hagsmunum svo nokkru nemi.“ Ég vil bara mótmæla þessari setningu, hæstv. forseti. Við höfum svo sannarlega þurft að fórna okkar hagsmunum og það gerðum við í landbúnaðarmálum. Það er alveg klárt. Ég er mjög hissa á þessari framsetningu í skýrslunni. Svo segir áfram að landbúnaðarstefna okkar taki að sami skapi mið af íslenskum aðstæðum. Tekur landbúnaðarstefna sú sem nú á að innleiða með því að hleypa inn hráu kjöti mið af íslenskum aðstæðum, hæstv. ráðherra? Ég held að það sé bara gott að fá svar við því. Mér hugnast ekki framsetningin á þessu í skýrslunni og er svolítið hissa á henni.
Næst vil ég víkja að kaflanum um alþjóða- og utanríkismál á bls. 20 þar sem fjallað er um Rússland. Það kemur fram í skýrslunni að mikilvægt sé að halda góðu talsambandi og það sé því í takt við stefnu annarra vestrænna stjórnvalda að eiga samtöl við rússneska ráðamenn á æðsta stigi stjórnsýslunnar. Ég fagna þessu því það er mikilvægt að halda góðu sambandi við Rússa. Þótt við séum ekki sammála framferði þeirra í Úkraínu og höfum gagnrýnt það mjög og í framhaldi tekið þátt í viðskiptabanni þá verðum við engu að síður að halda þessu samtali áfram og nýta það m.a. til þess að gagnrýna það sem við teljum vera gagnrýnivert. Það segir í skýrslunni: „Samtal við rússnesk stjórnvöld vegna innflutningsbannsins er hins vegar virkt og áfram reynt að þoka málum.“ Ég hefði gjarnan viljað fá nánari skýringu á því frá hæstv. ráðherra í hverju þetta felst.
Þegar vikið er að Kína er rætt um að hindrunum á útflutningi á lambakjöti til Kína hafi nú verið rutt úr vegi. Ég vil fagna þessu sérstaklega og einnig því að ræða eigi hvernig nýta megi betur fríverslunarsamning milli Íslands og Kína. Þetta er mjög merkilegur samningur og svolítið dapurlegt að það skuli ekki hafa verið hægt að nýta hann betur. Ég fagna því að það eigi að ræða þessa hluti og þá sérstaklega það sem kemur þarna inn, áætlunarflug milli Kína og Íslands. Það væri virkilega ánægjulegt ef það gengi eftir og myndi örugglega vera góð innspýting inn í ferðaþjónustuna á þeim tíma sem hún þarf á að halda. Auk þess fagna ég því sem kom hér fram í ræðu hæstv. ráðherra um að hugsanlega sé verið að stíga fyrstu skrefin í því að við náum fríverslunarsamningi við Japan. Það er afar mikilvægt og ég óska ráðherra til hamingju með það og vonandi gengur það eftir.
Síðan er á bls. 21 kafli um Miðausturlönd og þá er sérstaklega vikið að Jemen og því að íslensk stjórnvöld lögðu 100 millj. kr. framlag til neyðaraðstoðar í Jemen á síðasta ári. Ég fagna því sérstaklega. Stríðið í Jemen er ein hörmungarsaga. Á árunum 2017 og 2018 létust 130 börn á hverjum einasta degi úr hungri og sjúkdómum í Jemen. Það er svo sannarlega þörf á því að styrkja við uppbyggingu þar og neyðaraðstoð. Síðar í kaflanum er vikið að framferði stjórnvalda í Sádi-Arabíu í hernaðarátökum í Jemen og einnig mannréttindabrotum þeirra á eigin þegnum og gagnrýni Íslands í þeim efnum. — Ég sé, herra forseti, að tími minn er búinn og ég vil óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá og mun víkja nánar að því sem ég sagði um frammistöðu Íslands í mannréttindaráðinu.