utanríkis- og alþjóðamál.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og hefði kosið að hann hefði svarað spurningum mínum, eins og varðandi Rússland sem ég var að spyrja sérstaklega um. Það er alveg ljóst í mínum huga, og við erum bara ósammála með það, að ég tel að okkar hagsmunagæsla hvað varðar orkupakka þrjú hafi ekki verið nægilega öflug.
Ég skil ekki hvers vegna hæstv. ráðherra er svona óttasleginn við að segja nei við þessum orkupakka, fara með málið fyrir sameiginlegu EES-nefndina og fá þá niðurstöðu sem kemur til með að halda — vonandi í þá veru að við fáum undanþágu frá þessum orkupakka. Staða raforkumála á Íslandi er allt önnur en í Evrópusambandinu. Við vitum að tilgangurinn með þessum pakka er sá að samræma orkuverðið, að þetta verði eitt markaðssvæði. Það þýðir að orkuverð á Íslandi kemur til með að hækka.
Orkuverð hækkaði á Íslandi með innleiðingu orkupakka eitt til heimila og fyrirtækja. Það er alveg kristaltært og ég þekki það sjálfur. Ég kynti mitt hús með rafmagni. Þegar orkupakki eitt var samþykktur 2003 hækkaði rafmagn til húshitunar á mínu eigin heimili um 100%. Ég get sýnt hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur það svart á hvítu með rafmagnsreikningum. Auk þess hefur rafmagn til fyrirtækja hækkað. Það kemur fram í umsögn bakarameistarafélagsins að rafmagn til bakarameistara hækkaði við innleiðingu orkupakka eitt um 50%. Það er ekkert hægt að skýla sér á bak við þetta, það er verið að blekkja almenning í þessu. Þetta eru staðreyndir sem við þurfum að horfast í augu við og þarna hefur hagsmunagæslan einfaldlega brugðist að mínu mati. Hæstv. ráðherra verður að horfast í augu við að það er engin séríslensk lausn í orkupakka þrjú. Það gengur eitt yfir allt markaðssvæðið og stefnan er sú að rafmagnsverð verði það sama um alla Evrópu.