149. löggjafarþing — 97. fundur,  30. apr. 2019.

utanríkis- og alþjóðamál.

863. mál
[17:56]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, og bara sjálfsagt og eðlilegt að svara fyrir það sem hv. þingmaður vísaði til. Ég tek undir það sem hv. þingmaður nefnir varðandi Sádi-Arabíu. En varðandi Filippseyjar held ég að ég sé ekki upplýsa nein leyndarmál þegar ég segi frá þessum fundi sem ég átti með utanríkisráðherra Filippseyja, sem mér fannst alveg sjálfsagt að eiga. Það lá alveg fyrir og við höfum aldrei fordæmt að það sé verið að taka á fíkniefnaglæpahringjum. En þegar kemur að rökstuddum gruni um að fólk sé tekið af lífi án dóms og laga höfum við alltaf fordæmt slíkt.

Kollegi minn á Filippseyjum sagði bara: Heyrðu, þú verður bara að koma og taka þetta út. Ég benti réttilega á það, að ég tel, og ég sé ekki eftir því, að ég væri nú kannski ekki alveg í stöðu til þess. En ég tók alveg undir og skildi mætavel að hann vildi berjast gegn þessum glæpum. Ég hvatti til þess að alþjóðastofnunum yrði hleypt inn til að taka þetta út. Ég held að við getum ekki afgreitt þær allar sem svo að þær séu einhvern veginn á villigötum. Við í það minnsta treystum þeim alla jafna. Það var okkar sjónarmið.

Nú hef ég verið skammaður oft á íslensku, en hann skammaði mig á ensku á blaðamannafundi, þessi ágæti kollegi minn, sem kom prýðilega fyrir. Þetta var ágætis fundur. En það er ekki þannig, virðulegi forseti, að þegar maður gagnrýnir mannréttindabrot — sem ég hef gert, ekki bara hvað þetta varðar heldur á t.d. eiginlega öllum tvíhliða fundum hjá löndum þar sem við teljum að sé ekki í lagi með mannréttindi — að viðkomandi kollegi komi ekki með einhverja réttlætingu. Ég hef aldrei hitt neinn mann — og ætla ekki að nefna öll lönd — sem hefur sagt: Já, þetta er alveg rétt, við erum bara hér að brjóta mannréttindi miskunnarlaust. Menn eru alltaf með sínar réttlætingar.