149. löggjafarþing — 98. fundur,  2. maí 2019.

mannabreytingar í nefndum.

[10:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta barst tilkynning fyrr í dag, fimmtudaginn 2. maí, frá þingflokki Pírata um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa. Í atvinnuveganefnd tekur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sæti Helga Hrafns Gunnarssonar sem aðalmaður og Jón Þór Ólafsson verður varamaður. Í allsherjar- og menntamálanefnd tekur Helgi Hrafn Gunnarsson sæti Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur sem aðalmaður en hún verður varamaður í nefndinni.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.